stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Herra forseti. Góðir landsmenn. Það er tilefni til að byrja á því að óska nýskipuðum forsætisráðherra til hamingju með embættið. Katrín Jakobsdóttir er fyrsti sósíalistinn sem leiðir ríkisstjórn á Íslandi og til að ná þeirri sögulegu stöðu þurfti hún að vinna talsvert þrekvirki. Henni tókst að beygja bakland eigin flokks, en 3% kjósenda Vinstri grænna vildu fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, og á sama leggja tíma gjörvallan Sjálfstæðisflokkinn að fótum sér. Það er sannarlega ekki lítið afrek. Það er óþarfi að hrósa ráðherranum sérstaklega fyrir að hafa náð þriðja flokknum, enda hafði hann eins og ráðherrann vissi auglýst sjálfan sig á brunaútsölu frá því eftir þarsíðustu kosningar.
Í stefnuræðu sinni nefndi nýr forsætisráðherra ýmis atriði sem allir forsætisráðherrar nefna við þetta tækifæri og hafa gert í mörg ár, líklega marga áratugi. Ráðherrann talaði um mikilvægi þess að bæta heilbrigðisþjónustuna, efla menntun og nýsköpun og útrýma fátækt, vitnaði í ljóð og fagnaði íþróttaafrekum. Talin voru upp atriði sem nánast allir geta verið sammála um og ég ætla ekkert að efast um að viljinn sé til staðar hjá hinum nýja forsætisráðherra — eins og forverunum. Spurningin er hins vegar: Hvernig á að ná þessum árangri?
Ísland er í betri stöðu en næstum því öll önnur lönd veraldar, nánast sama til hvaða mælikvarða er litið. Sú staða varð ekki til af sjálfri sér. Og nú viljum við gera betur en það mun ekki gerast af sjálfu sér. Frasar um hvernig hlutirnir ættu að vera skila litlu einir og sér. Það sem skiptir máli er hvað menn gera. Og hvað mun þessi ríkisstjórn gera? Ræða forsætisráðherra veitti okkur litla innsýn í það.
En lítum þá til vísbendinganna sem þegar blasa við. Við höfum fengið ríkisstjórn sem talar mikið um að hún ætli að útdeila gæðum, útdeila fjármagni sem varð til með hinum risastóru aðgerðum síðustu ára, en á sama tíma ætlar stjórnin að leyfa algjört bakslag í þeim aðgerðum sem skiluðu árangrinum, leyfa þeim að snúast upp í andhverfu sína. Vinstri stjórnin afhenti vogunarsjóðum bankana. Stjórnin sem svo tók við náði þeim aftur en nú verður dæminu aftur snúið við. Um leið og við horfum upp á eftirgjöf stóru sigranna sem skiluðu hinum mikla efnahagsárangri sem nú á að nýta sjáum við stjórnina pikkfesta samfélagið í viðjum kerfishugsunar aftur frá síðustu öld. Stórkostleg mistök við byggingu Landspítala skulu kláruð. Kerfið er víst búið að eyða svo löngum tíma í að undirbúa mistökin að það bara verður að fá að klára þau. Þegar, og ef, nýbyggingar spítalans við Hringbraut verða teknar í notkun hefst starfsemi í húsum sem byggja á 30 ára gamalli þarfagreiningu. Starfsemi spítalans verður þá í fleiri húsum og byggðum á lengra tímabili en húsin á Árbæjarsafni.
Þetta er ekki ríkisstjórn stórra ákvarðana og þetta er ekki umbótastjórn. Þetta er kerfisstjórn. Réttlætingin er sú að kalla þetta stöðugleikastjórn sem vilji ekki takast á við stór pólitísk álitamál. Hún ætlar að útdeila peningum í núverandi kerfi og láta svo kerfið um að stjórna. Flokkarnir sem töpuðu kosningunum mynduðu bandalag sem byggist á skiptingu ráðherrastóla og áframhaldandi kerfisræði, reyndar vinstri grænu kerfisræði.
Hvar í stjórnarsáttmálanum finna Framsóknar- eða Sjálfstæðismenn áherslur sem þeir geta verið stoltir af? Þá er ég ekki að tala um allt þetta almenna tal sem allir geta verið sammála um, betri heilbrigðisþjónusta, meiri nýsköpun og allt hitt, allt sem er í öllum stjórnarsáttmálum og öllum stefnuræðum. Nei, spurningin snýst ekki um það. Spurningin er: Hvar í stjórnarsáttmálanum geta Sjálfstæðismenn bent á atriði og sagt: Þarna birtist okkar hugsjón, það sem við höfum fram að færa, sú sýn sem við, ólíkt öðrum, höfum á hvernig best sé að ná árangri? Slík atriði eru ekki mörg.
Framsóknarflokkurinn virðist svo ekki hafa fengið neitt, ekki eitt einasta, af sínum stóru kosningamálum nema að vísu, það er nefnt nánast eins og í háðungarskyni, að í fjármálaráðuneytinu verði áfram unnið að markvissum skrefum til afnáms verðtryggingar. Við sem höfum fylgst með þeirri vinnu fram að þessu föttum brandarann — sem er reyndar býsna góður.
Þeir félagar, forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem komu ekki mörgu í stjórnarsáttmálann réttlæta veru sína í ríkisstjórninni með því að þeir séu að þessu til að koma á pólitískum stöðugleika. Þessir menn, af öllum mönnum, telja sig nú best til þess fallna að tryggja pólitískan stöðugleika. Þetta eru mennirnir sem sátu í ríkisstjórn með 13 þingmanna meiri hluta, stjórn sem hafði skilað mesta og hraðasta efnahagslega viðsnúningi sem sést hefur, stjórn sem var að vinna að gríðarlega stórum hagsmunamálum þjóðarinnar þegar þeir gáfust upp. Þeir gáfust upp og boðuðu til kosninga í lok október með ókláruð fjárlög, raunar með allt óklárað, allt sem þeir höfðu ætlað sér eða átt að klára. Þó höfðu þeir þegið það að forsætisráðherra stigi til hliðar svo friður gæfist til að klára verkefnin sem varð að klára. Eftir að þeir voru beðnir að líta eftir málunum sem varð að klára var byrjað á sumarlokunum. Þegar þing kom svo saman var stjórnarandstaðan látin ráða för og loks ákveðið að loka sjoppunni, senda alla heim og boða til kosninga, kosninga sem skiluðu stjórnarkreppu. Þetta eru mennirnir sem bjóða sig nú fram til að innleiða pólitískan stöðugleika.
Það eru þó litlar líkur á að sú stjórn sem nú hefur tekið við muni fylgja sömu aðferð og þeir félagar, halda sig til hlés, láta stjórnarandstöðuna um að stjórna og bíða eftir kosningum.
Við skulum rifja upp fyrir hverjum þeir gáfust upp. Þeir gáfust upp fyrir nákvæmlega sömu vinstri græningjunum og þeir liggja nú kylliflatir fyrir í stjórnarsamstarfi. Vinstri græn skynjuðu auðvitað sterka stöðu sína og þau ætla aldeilis að nýta hana. Stjórnarsáttmálinn ber þess glöggt merki en það gerir fjárlagafrumvarpið líka. Margt í frumvarpinu er áhugavert og við ræðum það á morgun, en eitt verður þó að nefna núna því að það tengist sérstaklega forsætisráðherranum og stefnunni sem hann boðar. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að auka framlög til forsætisráðuneytisins um 50% milli ára. Ég hef aldrei séð aðra eins aukningu hjá nokkru ráðuneyti. Þetta er auðvitað miklu meira en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í september sl. Stór hluti af aukningunni er nýtt 105 millj. kr. framlag sem á að nota í forsætisráðuneytinu til að hafa eftirlit með ráðherrum í ríkisstjórninni, samræma aðgerðir og passa upp á að þeir fylgi réttri stefnu. Fyrir þessa upphæð gæti forsætisráðherra ráðið tíu manns til að hafa eftirlit með ráðherrunum, einn eftirlitsmann fyrir hvern ráðherra. 105 milljónir á ári í að passa upp á að stefnu Vinstri grænna verði framfylgt. Ef til vill finnst þeim hinum þetta bara ágætt. Eru þeir í raun svo ólíkir, þessir flokkar, þ.e. þegar kemur að stóru málunum? Láta þeir ekki bara skammta sér sömu kerfislausnirnar? Hefði núverandi stjórn t.d. tekið öðruvísi á stóru málunum en vinstri stjórnin gerði á sínum tíma? Ég er ekki viss um það.
Á næstunni munum við eflaust heyra áframhaldandi frasaflóð til að réttlæta tilvist þessarar ríkisstjórnar. En stjórnmál eiga ekki bara að snúast um að segja hluti sem hljóma vel og eftirláta stjórnkerfinu rekstur samfélagsins. Stjórnmál eiga að snúast um að stjórna, að þora að taka ákvarðanir, leggja sig undir og taka afleiðingunum og gera þetta allt sem fulltrúi kjósenda en ekki sem eigandi vinstra fylgis eða eigandi hægra fylgis.
Það dugar ekki að sitja bara kyrr til að forðast að rugga bátnum. Það þarf líka að róa. Það þarf að taka ákvarðanir. Allt þetta fjármagn sem nú er hægt að nýta í að treysta innviðina varð ekki til með ræðum um mikilvægi þess að treysta innviðina. Það var til með stórum ákvörðunum, umdeildum ákvörðunum, og með því að framkvæma. Ekkert samfélag hefur verið byggt upp á innihaldslausum frösum stjórnmálamanna. Þeir eru hins vegar iðulega fylgifiskur slæmra ákvarðana eða ákvarðanaleysis.
Vonandi mun ný ríkisstjórn þora að taka stórar ákvarðanir sem reynast munu samfélaginu vel og vonandi mun hún taka leiðsögn og ábendingum um hvernig megi gera hlutina betur. Við það óska ég nýrri ríkisstjórn velfarnaðar.