148. löggjafarþing — 2. fundur,  14. des. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:47]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Við erum ofurseld dyntum og lögmálum náttúrunnar hér á landi og við höfum lært að laga okkur að þeim. En náttúrulögmálin ríkja ekki jafn víða í lífi okkar og stundum mætti ætla. Það er t.d. ekki náttúrulögmál að hér séu háir vextir og yfirþyrmandi ævilangar afborganir af lánum fyrir allt venjulegt launafólk sem er bara að fullnægja þeirri grundvallarþörf og grundvallarmannréttindum hverrar fjölskyldu að hafa húsaskjól.

Gjaldmiðillinn er ekki náttúrulögmál. Krónan er ekki þjóðargersemi sem við eigum að elska eins og lóuna og holtasóleyna heldur ákveðið fyrirkomulag á skiptingu verðmæta í samfélaginu sem hentar þeim ríku og voldugu, sérhagsmunum, en bitnar á öllum almenningi í formi vaxtaokurs og verðtryggingar, að ekki sé talað um þær stórfelldu kjaraskerðingar sem við kennum við gengisfellingar.

Það er ekki náttúrulögmál sem veldur því að arður þjóðarinnar af sjávarauðlind sinni í formi veiðigjalda er 1% af tekjum ríkisins. Það er ákvörðun stjórnmálamanna að hafa þetta svona vegna þess að það hentar voldugum öflum. Fyrir vikið verðum við af öflugum, réttlátum og varanlegum tekjustofni til að styrkja samfélagið en ofsagróði kvótaeigenda smýgur um allt þjóðlífið með alls konar afleiðingum, sá sem á annað borð ratar aftur heim frá skattaskúmaskotum heimsins.

Það er ekki náttúrulögmál að valdakarlar geti beitt ofbeldi og áreitni og treyst á ósýnileg bandalög og bræðralög til að hylma yfir, fela slóðir, eyða gögnum, hvítþvo æru.

Það er ekki náttúrulögmál sem við þurfum bara að aðlagast að ráðherrar svíki loforð eftir kosningar eins og gert var með þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu og eins og gert hefur verið aftur og aftur og enn og aftur í framlögum til heilbrigðismála og menntamála. Í lýðræðisríki ættu svikin kosningaloforð að vera pólitískur ómöguleiki.

Það er ekki náttúrulögmál að þessi ríka og vel menntaða þjóð búi við heilbrigðiskerfi sem einkennist af stjórnleysi, langvarandi vanrækslu, óhóflegu vinnuálagi og sjúklingum liggjandi á göngum eins og í stríðshrjáðum löndum. Verðtrygging og háir vextir eru ekki eins og hver önnur rigning, vanrækt opinber þjónusta er ekki eins og eldsumbrot.

Ekkert af þessu er náttúrulögmál en allt vitnar þetta um að almannahagsmunir eru fyrir borð bornir og ákvarðanir eru teknar með sérhagsmuni að leiðarljósi. Þetta er ekki vegna þess að stjórnmálamenn séu spilltar og vondar manneskjur, heldur þarf gagngerar og djúptækar breytingar á íslensku samfélagi, ný hlutskipti, nýja framtíðarsýn. Því miður finnst mér ekkert í stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra eða framlögðu fjárlagafrumvarpi vitna um að slíkar breytingar séu í vændum, heldur bendir flest til þess að núverandi stjórnarflokkar hafi ákveðið að slá skjaldborg um sérhagsmunina.

Góðir landsmenn. Gleðileg jól.