148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

fjáraukalög 2017.

66. mál
[15:05]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Í inngangi fjáraukalaga segir að lög um opinber fjármál eigi að draga úr þörf og umfangi fjáraukalaga. Þannig að já, tvímælalaust; 2,2% hækkun á fjárlögum 2017 er rosalega mikið í fjáraukalögum, en kannski ekki mikið í samhengi við fjárlög sem fara eftir stærri stefnumótun.

Ég hefði átt að skrifa þetta niður, það er alltaf þannig að þegar maður kemur upp í pontu dettur maður úr gír. Ég var með einhverja voðalega skemmtilega pælingu sem ég verð að koma að seinna.

Ég er annars sammála hv. þingmanni, hlutverk fjáraukalaga á samkvæmt lögum um opinber fjármál ekki að vera miklu minna umfangs í ljósi þess að við erum meðfram því líka að vinna að frumvarpi um fjárlög 2018 á gríðarlega skömmum tíma við gríðarlega flóknar aðstæður. Það er spurning hversu gott við getum gert úr því og hvaða ábyrgð það leggur á ríkisstjórnina varðandi eftirlitið með framkvæmd fjárlaga í kjölfarið. Við höfum mjög litlar upplýsingar um hvað við erum í raun að samþykkja í fjárlögum, við höfum fengið litla yfirferð yfir það hvað er í raun ætlast til að verið sé að fjármagna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Ef við spyrjum eftir á: Fjármagnið þið örugglega þetta verkefni? þá vitum við það ekki því að okkur var ekki sagt að verið væri að vinna eitthvert ákveðið verkefni. Alla vega ekki fyrir alla þá upphæð sem er gert ráð fyrir í fjárlögum. Við fáum bara að vita um nokkur verkefni, fimm til tíu eða svo á hverju málefnasviði. En allur ramminn er óútskýrður.