um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég kem upp út af orðum hv. þingmanns um pólitískan hráskinnaleik. Það er alveg skýr skylda stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að hafa eftirlit með störfum framkvæmdarvalds og þings og ég frábið mér að vera sett í þá fáránlegu stöðu að ég sé hér uppi til þess að vera í pólitískum leik. Eftir að dómur féll í Hæstarétti sá maður í gögnum málsins ýmislegt sem ekki kemur fram í dómi Hæstaréttar, t.d. um fjöldann allan af ráðleggingum til hæstv. dómsmálaráðherra sem hún virti fullkomlega að vettugi. Við sjáum einnig að það eru engar ráðleggingar sem liggja fyrir þess efnis að hún skyldi fara þá leið sem hún fór. Þetta er til að mynda algjörlega nýtt í málinu, að það eru engar ráðleggingar.
Þess vegna (Forseti hringir.) kom ég upp í dag, til að spyrja hver það var sem ráðlagði (Forseti hringir.) henni að fara þá leið að (Forseti hringir.) brjóta lög, af því ég trúði því ekki að hæstv. dómsmálaráðherra (Forseti hringir.) hefði gert þetta af brjóstvitinu einu saman.