dánaraðstoð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hún spyr til hvaða starfsmanna væri verið að leita til. Ég tel mikilvægt að gerð væri almenn könnun meðal lækna og hjúkrunarfólks. Það er kannski vegna þess að við eigum slíkar rannsóknir burt séð frá því hversu stórt úrtakið hefur verið í þeim könnunum.
Ég held að það væri mikilvægt að horfa til þess að allir læknar og hjúkrunarfólk, og það má eflaust opna það fyrir fleiri stéttir í heilbrigðisgeiranum, myndu svara slíkum spurningum. En það væri kannski líka eðlilegt að flokka það fólk eftir fagsviði.
Ég minnist þess þegar við áttum hér ágætan fund með þessum hollenska lækni að hann sagði að það væri svolítill munur á afstöðu lækna eftir því í hvaða geira þeir væru. Það er örugglega eðlilegt.
Ef við myndum í framhaldinu horfa á hollensku leiðina þá eru þar í landi heimilislæknar sem taka við svona beiðnum. Viðkomandi heimilislæknir þarf þá að samþykkja beiðnina en jafnframt fá staðfestingu frá öðrum lækni til þess að af því geti orðið. Það er sem sagt viðkomandi heimilislæknir sem kemur að dánaraðstoðinni og það er alltaf þannig að viðkomandi sjúklingur þarf annars vegar að vera búinn að fara í það ferli að sækja um og annað og hins vegar þarf það að vera á þeim tímapunkti að viðkomandi sjúklingur geti skýrlega greint frá vilja sínum, að þetta sé örugglega afstaða hans og vilji.