félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Ég hef grun um það að þegar góðærið er svona mikið eins og núna, allt á fullum dampi í þjóðfélaginu, þá vilji svona mál gleymast. Menn setja þau aftur fyrir sig og vilja bara taka stefnuna beint áfram. Þá verða ýmsir fyrir brotum. Félagsleg undirboð og svört atvinnustarfsemi eru bara tvær hliðar á sama peningnum og þeir sem verða fyrir þessum brotum eru oftar en ekki erlent verkafólk og ungir Íslendingar sem gjarnan eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði.
Menn kalla eftir lausnum, spyrja: Hvað getum við gert? Margir hafa nefnt þær stofnanir sem eiga að fylgjast með þessu, þær stofnanir sem best eru til þess fallnar að fylgjast með þessu, eins og Vinnumálastofnun, Vinnueftirlitið, skatteftirlitið — allt tengist þetta nú og menn verða varir við þetta í eftirlitsferðum sínum. Það er auðvitað mikilvægt að ríkið standi á bak við þessar stofnanir. Ég hef sem dæmi nefnt lögregluna, að ríkið dragi ekki mikið úr starfsemi hennar. Lögreglumönnum hefur, eins og ég hef sagt í þessum stól, ekki fjölgað neitt síðustu tíu árin, þeim hefur frekar fækkað. Og svo á að efla rannsóknir.
Það sér hver maður að þegar íbúum fjölgar, erlendu verkafólki fjölgar stórlega, erlendum ferðamönnum fjölgar í þeim mæli sem við höfum séð síðustu árin, þá hefur lögreglan ekki mannafla, miðað við þessar tölur, til að rannsaka sífellt fleiri, flóknari og erfiðari brot.
Ég segi: Ríkisstjórnin þarf að fara að standa í lappirnar ef hægt á að vera að takast á við þessi mál.