rannsókn kjörbréfs.
Borist hefur bréf frá 4. þm. Suðvest., Guðmundi Andra Thorssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir því að í dag taki Adda María Jóhannsdóttir sæti á Alþingi en hún er 2. varaþingmaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu. 1. varamaður á lista hefur boðað forföll. Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Öddu Maríu Jóhannsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til að fjalla um kjörbréfið.