148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

dagskrá fundarins.

[14:08]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Ég vil taka undir þær athugasemdir hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur. Ég hef lengi gert athugasemd við vinnulag í þessum þingsal. Það sem er kaldhæðnislegt við þetta er að núverandi forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, hefur ekki síst beitt sér fyrir þessu þegar hann sat hinum megin við borðið, þ.e. breyttu vinnulagi hvað þetta varðar.

Ég man þá tíð þegar núverandi forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, kallaði þáverandi forseta Alþingis færibandastjóra. Ég ætla núverandi forseta ekki þann titil núna, en hann hlýtur að sjá að það gengur ekki að hrúga 18 stjórnarfrumvörpum á einn dag. Við höfum kallað eftir stjórnarfrumvörpum í allan vetur og það er hagsmunamál bæði stjórnarliða og stjórnarandstæðinga að fá málin fyrr svo við getum unnið þau betur. Nú eru einungis 14 þingfundadagar fram að hléi vegna kosninga og þess vegna gengur þetta vinnulag ekki lengur. Ég held að forseti þingsins verði að fara að líta á sig sem forseta (Forseti hringir.) þingsins en ekki forseta framkvæmdarvaldsins.