148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 724, um starfsmenn Stjórnarráðsins, frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.

Borist hefur bréf frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 741, um umferðarlagabrot erlendra ferðamanna, frá Birgi Þórarinssyni.

Loks hefur borist bréf frá umhverfis- og auðlindaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 744, um rannsóknir og öryggisráðstafanir vegna jarðvegslosunar í Bolaöldu, frá Ólafi Ísleifssyni.