148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

kjör ljósmæðra.

[11:06]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil í upphafi þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að fallast á að taka þátt í þeirri umræðu sem sækir á okkur þessa dagana. Kjaradeila ljósmæðra er enn í óleystum hnút. Íslenskar ljósmæður eru ekki fjölmenn stétt. Það eru 280 félagar í Ljósmæðrafélagi Íslands. Nýliðun er hæg, að jafnaði ljúka tíu hjúkrunarfræðingar framhaldsmenntun árlega og hljóta réttindi til starfa sem ljósmæður og hafa þá lokið sex ára háskólamenntun. Hvergi á Norðurlöndum hafa ljósmæður lengra nám að baki og jafn víðtæka þekkingu í heilbrigðisfræðum. Aðeins fjórar af þessum tíu ljósmæðrum sem ljúka námi hafa að jafnaði skilað sér til starfa á Landspítala sem hlýtur að vera sérstakt áhyggjuefni. Nokkrar velja sér starfsvettvang á öðrum stöðum í heilbrigðiskerfinu, svo sem á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og í heilsugæslunni, og það er jákvætt og nauðsynlegt.

Félagar í Ljósmæðrafélagi Íslands eldast. Meira en helmingur hópsins er yfir fimmtugu. Í slítandi vaktavinnu tekur starfið toll, það staðfesta fjölmargar uppsagnir undanfarinna vikna sem ekki munu ganga til baka. Þess utan sýnir reynslan að allt að 20% starfsmanna skila sér ekki aftur til starfa á vinnustað eftir óróleika sem þennan. Ljósmæður sem standa þrískiptar vaktir í fullu starfi mega að auki una því að á þeim eru brotin mikilvæg ákvæði um hvíldartíma. Lög eru brotin á þeim. Ljósmæðrum er sennilega flest betur gefið og kærara en að standa í kjaradeilum þótt raunin sé sú að liðin eru aðeins þrjú ár frá því að þær fóru í tíu vikna verkfall sem enn situr í þeim og hefur áhrif inn í núverandi deilur. Þær unnu vinnuna sína samkvæmt skyldu í því verkfalli en var neitað um laun. Þær fara ekki í verkfall í þetta sinn, heldur boða uppsagnir. Þær gera sér ljóst að verkfall er bitlaust verkfæri í þeirra höndum þar sem þeim er gert að tryggja neyðarmönnun. Að þeirra sögn er mönnun oftar en ekki þannig vegna manneklu að um raunverulega neyðarmönnun er að ræða frá einum degi til annars.

Virðulegur forseti. Sumarið er komið og í hönd fer einhver annasamasti tími ársins í fæðingum. Gera má ráð fyrir að rúmlega 2.000 börn fæðist á landinu í sumar. Við fengum fyrir skemmstu aðeins örlítinn smjörþef af því ástandi sem skapast getur þegar heimaþjónustan hjá ljósmæðrum féll niður í nokkra daga. Um síðir náðust fyrir beinan atbeina hæstv. ráðherra samningar um þessa mikilvægu þjónustu sem unnin er í verktöku. Fróðlegt væri að heyra álit ráðherra á þeim samningi sem náðist, hvort með honum standi ljósmæður jafnfætis öðrum þeim heilbrigðisstéttum þar sem Sjúkratryggingar hafa gert viðlíka verktakasamninga.

Ljósmæður vita ekki sitt rjúkandi ráð, þessi gamalgróna stétt sem lifað hefur með þjóðinni í gegnum súrt og sætt, á hverju sem hefur gengið. Alltaf kom ljósmóðirin, hvort sem búið var í bæ, við afskekktan fjörð eða inn til dala, þessi hreinasta kvennastétt í samfélaginu. Þar er enginn karl. Er skýringuna kannski að finna í þeirri staðreynd? Upplifum við það enn, hæstv. ráðherra og kynsystir ljósmæðra, að við fáum það enn staðfest að sú mismunun sem við horfum upp á sé vegna kerfislægs kynjamisréttis? Það er raunalegt að upplifa þetta hróplega óréttlæti þegar horft er til samanburðarhópa úr háskólasamfélaginu. Myndi það kannski liðka fyrir lausn að þær skiptu um nafn og nefndu sig fæðingartæknifræðinga eða fæðingarfræðinga?

Í ljósi aðstæðna leyfi ég mér að spyrja hæstv. ráðherra hvernig samningamál standi í raun, hvaða skilaboð og umboð samninganefnd ríkisins hafi til þess að binda endi á þessa deilu og hvort ráðherra telji ekki deiluna svo alvarlega að ástæða sé til að stíga inn og hlutast til um lausn og það fyrr en seinna. Telur hæstv. ráðherra virkilega ekki svigrúm til að lyfta kjörum þessarar sérstöku og mikilvægu kvennastéttar í heilbrigðisþjónustu og leiðrétta til samræmis við aðrar háskólamenntaðar stéttir með viðlíka nám að baki?

Virðulegur forseti. Íslendingar völdu fyrir nokkrum árum fegursta orð íslenskrar tungu. Það var orðið ljósmóðir. Það segir mikið um þann hug sem landsmenn bera í þessu sambandi. Þau voru líka fögur, fyrirheitin sem ríkisstjórnin gaf í stjórnarsáttmála sínum um að stíga markviss skref til að eyða kynbundnum launamun, að draga muninn betur fram í dagsljósið. Hvað þarf að líða langt fram á sólbjartan daginn? Krossmessa á vori er í dag, (Forseti hringir.) til upplýsingar. Var þetta bara fagurgali?

Virðulegur forseti. Það var ekki mikil fegurð fólgin í bréfinu sem ljósmæður fengu í gær. Nú skora ég á hæstv. ráðherra að leggjast á árarnar og bregðast ekki ljósmæðrum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)