148. löggjafarþing — 60. fundur,  8. maí 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[15:30]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég vildi gagnvart þessu máli lýsa því yfir að ég styð eindregið að sú skoðun sem tillagan gerir ráð fyrir fari fram. Ég vil ekki gefa mér neitt um niðurstöðuna, en ég held að það sé hollt í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað um verðtryggingu og slík mál að athugun að þessu leyti fari fram. Auðvitað er verið að skoða þessi mál, þau hafa svo sem verið skoðuð áður og um það eru skiptar skoðanir, en ég tel að það sé gagnlegt að láta fara fram athugun með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir þannig að ég styð það en tek fram að á þessari stundu hef ég ekki sannfæringu fyrir því hver niðurstaða þessarar könnunar eigi að vera og vil ekki gefa mér neitt um það.