148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

skattleysi launatekna undir 300.000 kr.

474. mál
[20:20]
Horfa

Flm. (Ólafur Ísleifsson) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um skattleysi launatekna undir 300.000 kr. Flutningsmenn, auk þess sem hér stendur, eru hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Inga Sæland og Karl Gauti Hjaltason. Efni þingsályktunartillögunnar er sem hér segir:

Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram frumvarp fyrir lok árs 2018 um að mánaðartekjur einstaklinga undir 300.000 kr. verði undanþegnar tekjuskatti með það að markmiði að rétta hlut þeirra sem lægstar hafa tekjurnar og gera þeim betur kleift að ná endum saman.

Þingsályktunartillagan felur í sér að fjármála- og efnahagsráðherra geri tímasetta áætlun um að gera tekjur einstaklinga undir 300.000 kr. undanþegnar tekjuskatti og að lagt verði fram frumvarp þess efnis eigi síðar en fyrir lok árs 2018. Eðlilegt er að fyrsta skref í átt að þessu markmiði felist í tilfærslu fjár innan tekjuskattskerfisins með því að persónuafsláttur verði stiglækkandi eftir því sem tekjur eru hærri og falli niður við tekjumark eigi hærra en 1.500.000 kr. á mánuði, eins og segir í greinargerð, en vel mætti hugsa sér lægri tekjumörk í þessu sambandi. Sparnaðurinn sem með þessu myndast innan tekjuskattskerfisins verði nýttur til að hækka persónuafslátt lægstu tekjuhópa.

Samkvæmt gildandi skattalögum er persónuafsláttur 53.895 kr. á mánuði árið 2018. Þetta þýðir að skattleysismörk á mánuði eru 151.978 kr. miðað við launþega með 4% lífeyrissparnað.

Í skýrslu ASÍ, Skattbyrði launafólks 1998–2016, sem út kom í ágúst 2017 kemur fram að enda þótt persónuafsláttur hafi hækkað samfellt frá aldamótum og meira en tvöfaldast að krónutölu hefur raunþróun verið öllu sveiflukenndari. Að raunvirði dróst persónuafsláttur saman á árunum 1998–2016. Skattleysismörkin hafa því lækkað að raungildi með árunum miðað við verðlag og væru miklu hærri ef persónuafsláttur hefði fylgt launum.

Fram kemur í tilvitnaðri skýrslu ASÍ að skattbyrðin hafi aukist hjá öllum tekjuhópum á tímabilinu 1998–2016 en umtalsvert meira á lægri tekjur en þær hærri. Skattbyrði lágmarkslauna hefur á þessum mælikvarða aukist úr 4% árið 1998 í 16% árið 2016 eða um 14 prósentustig eins og stundum er tekið til orða. Skattbyrði á laun við neðri fjórðungsmörk hefur á sama tíma aukist um 6 prósentustig en minnst er aukningin við efri fjórðungsmörk launa eða um 3 prósentustig.

Niðurstöður rannsóknar ASÍ eru á sömu lund, þ.e. að heildarskattbyrði launafólks að teknu tilliti til tekjuskatts, útsvars og persónuafsláttar auk barna- og vaxtabóta hafi aukist í öllum tekjuhópum á tímabilinu og að aukningin sé langmest hjá hinum tekjulægstu. Hér skýtur svo sannarlega skökku við. Ályktun ASÍ er að munurinn á skattbyrði tekjulægstu hópanna og hinna tekjuhærri hafi því minnkað og dregið hafi úr tekjujöfnunarhlutverki skattkerfisins. Kaupmáttaraukning undanfarinna ára hafi þannig skilað sér síður til launafólks með lægri tekjur en hinna tekjuhærri vegna vaxandi skattbyrði.

ASÍ lýsir því áliti í skýrslu sinni að þessa þróun megi einkum rekja til ýmissa þátta, þar á meðal að persónuafsláttur hafi ekki fylgt launaþróun, sem hafi aukið skattbyrði lægri launa mest. Að lögum eiga fjárhæðarmörk skattþrepa að fylgja launaþróun en skattleysismörk, sem ákvarðast af upphæð persónuafsláttar, að fylgja verðlagi. Þetta misræmi veldur auknum ójöfnuði í ráðstöfunartekjum þegar frá líður.

Niðurstaða ASÍ er að stuðningur vaxtabótakerfisins hafi minnkað verulega á tímabilinu og að fækkað hafi í þeim hópi sem fær greiddar vaxtabætur. Íslenska barnabótakerfið sé veikt og dragi eingöngu úr skattbyrði einstæðra foreldra og allra tekjulægstu para. Húsaleigubótakerfið hafi þróast með sama hætti og önnur tilfærslukerfi og hafi því dregið úr stuðningi við launafólk á leigumarkaði.

Á vefsíðu velferðarráðuneytisins kemur fram að framfærsluviðmið einstaklings á mánuði nemi 222.764 kr. og sé þá ekki tekið tillit til húsnæðiskostnaðar. Ég undirstrika það. Fram kemur á vef ráðuneytisins að dæmigert viðmið eigi að endurspegla og gefa sem heildstæðasta mynd af útgjöldum íslenskra heimila. Fyrir flesta útgjaldaflokka er dæmigert viðmið reiknað þannig að fyrst eru lægstu og hæstu útgjaldafjórðungarnir, miðað við heildarútgjöld, teknir út og síðan miðgildi útgjalda fyrir hvern útgjaldaflokk reiknað. Þessu til viðbótar er kostnaður vegna rekstrar bifreiða og skólatengdur kostnaður barna reiknaður sérstaklega. Segir á vefsíðu ráðuneytisins að hér sé því hvorki um lágmarks- né lúxusviðmið að ræða.

Neysluviðmið velferðarráðuneytis eru reist á skýrslu sérfræðingahóps frá árinu 2011 um neysluviðmið fyrir heimili á Íslandi. Gildandi neysluviðmið hafa verið uppfærð á grunni rannsóknar Hagstofu Íslands á útgjöldum heimilanna.

Ég vek athygli á því að liðirnir húsaleiga eða reiknuð húsaleiga, viðhaldskostnaður húsnæðis og rafmagn og hiti eru ekki hluti af íslensku neysluviðmiði. Þar sem neysluviðmiðið byggist á ráðstöfunartekjum koma greiðslur beinna skatta og opinberra gjalda ekki inn í útreikning neysluviðmiða.

Hið dæmigerða viðmið sem hér er stuðst við á að endurspegla og gefa sem heildstæðasta mynd af útgjöldum íslenskra heimila eins og áður segir. Dæmigert viðmið fyrir útgjöld einstaklings með engin börn sem býr á höfuðborgarsvæðinu er tæpar 223.000 kr. Dæmigert viðmið fyrir útgjöld hjóna með tvö börn sem búa á höfuðborgarsvæðinu með annað barnið á leikskóla, en hitt í grunnskóla þar sem keyptar eru skólamáltíðir og frístundavistun, er rétt tæplega 495.000 kr. eða 494.821 kr.

Lágmarksframfærsla samkvæmt þessu fyrir einstakling verður naumast metin undir 300.000 kr. og má telja þá fjárhæð síst ofáætlaða miðað við þróun húsnæðiskostnaðar á umliðnum misserum og árum eins og öllum má ljóst vera. Öllu fremur mætti telja þá fjárhæð sem hér er tilgreind of lága. Þetta þýðir að samkvæmt gildandi ákvæðum laga um tekjuskatt eru skattlagðar tekjur sem ekki hrökkva fyrir lágmarksframfærslu. Svo einfalt er það. Ekkert ríki sem vill kenna sig við velferð getur verið þekkt fyrir að standa þannig að slíkri skattlagningu.

Ég vek athygli á, frú forseti, að ríkisstjórnin telur óhætt að lækka neðri mörk tekjuskatts um 1% sem almennt er talið kosta 14 milljarða og gefa eftir meira en 60% af bankaskattinum sem kostar ekki minna en 7 milljarða. Verður því ekki sagt að ekki sé til fé til að stíga markvert skref í þessum efnum. Þessi þingsályktunartillaga er lögð fram með það að markmiði að fólki á lægstu tekjum verði gert kleift að komast betur af og að enginn þurfi að sjá dreginn skatt af tekjum sem duga ekki fyrir nauðþurftum.

Ég leyfi mér að leggja til að málinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.