148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

lengd þingfundar.

[16:11]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti reyndi eftir besta megni í morgun í umræðum um fundarstjórn forseta að útskýra aðdragandann að því að dagskrá fundar í dag er sem raun ber vitni. Forseti tekur ekki til sín ásakanir um svik eða svikna samninga í þessum efnum.