fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Varðandi samanburð við útgjöld fyrri ára þá er út af fyrir sig alveg rétt að útgjöldin voru af ýmsum neikvæðum ástæðum mjög há á árunum 2010 og 2011, svo dæmi sé tekið, en það merkilega við myndina er að við höfum frá þeim tíma stóraukið útgjöldin til rammasettra frumútgjalda til allra málefnasviða án þess að hlutfall heildargjaldanna af landsframleiðslu fari upp. Það er út af ótrúlegum árangri í uppgreiðslu skulda en auðvitað líka vegna þess að landsframleiðslan hefur vaxið svo mikið þannig að hlutfallið hefur haldist þrátt fyrir útgjaldavöxt að raunvirði.
Þetta er í raun umræða í aðra röndina um það hvar við stillum rétt útgjaldastiginu á toppi hagsveiflunnar. Það eina sem ég get í raun og veru bent á í þessu efni til að róa áhyggjur hv. þingmanns er að við erum að skila afgangi, við stefnum í 20% skuldahlutfall opinberra fjármála á áætlunartímabilinu. Náist 20% skuldahlutfallið erum við komin í opinberum fjármálum u.þ.b. 300 milljörðum undir skuldaviðmið upp á 30%. 10% undir skuldaviðmiðinu er um 300 milljarða svigrúm sem segir sína sögu bara eitt og sér. Vaxtagjöld ríkissjóðs eru núna sem hlutfall af landsframleiðslu komin undir það sem þau voru í aðdraganda hrunsins. Ef þetta eru ekki vísbendingar um að við séum að búa í haginn fyrir framtíðina veit ég ekki hvað myndi fullnægja hv. þingmanni í því efni. Það er varla hægt að gera ráð fyrir að hægt sé að gera meira á jafn skömmum tíma.
Ég ætla hins vegar ekki að fara að gerast andmælandi hv. þingmanns þegar kemur að því að það þurfi að gæta að útgjaldaþróuninni og ég hef þess vegna lagt áherslu á að við förum í endurmat útgjalda, að menn rýni vel (Forseti hringir.) nýjar ársskýrslur ráðuneyta og skoði markmið ráðuneytanna og hvernig þau eru fjármögnuð í þeirri stefnu sem við fylgjum. (Forseti hringir.)Það er nýtt verklag, það gefur tækifæri á að fara nánar ofan í saumana og ég efast ekki um að það sé rétt hjá hv. þingmanni og mörgum öðrum að (Forseti hringir.)við erum sums staðar að eyða peningum sem væri betur fyrir komið í afgangi ríkisfjármálanna eða til einhverra annarra verkefna.
(Forseti (SJS): Forseti biður hæstv. ráðherra og hv. þingmenn að gæta tímamarka. Hér er rýmkaður andsvarsréttur og dagurinn verður langur ef það dugar mönnum ekki unnvörpum.)