fjárlög 2019.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og fagna því sérstaklega að hann skyldi nefna garðyrkjuna því að hún er gott dæmi um hvernig skynsamleg umgjörð, með því að hætta tollvernd en auka beingreiðslur til bænda, varð til þess að bændur náðu að byggja greinina verulega upp. Þeir hafa staðist fyllilega snúning þeirri samkeppni sem er í innflutningi að því er virðist og náð að auka fjölbreytni og vöruþróun. Og, það sem er meira um vert, hækkun á grænmeti er kannski helmingurinn af því sem aðrar innlendar landbúnaðarafurðir hafa hækkað um á undanförnum tveimur áratugum eða svo, eða rétt frá þeim tíma sem þessar breytingar tóku gildi.
Af því að hæstv. ráðherra nefnir mjólkurframleiðsluna er ég alveg sammála því að breytingarnar í mjólkurkvótanum á sínum tíma þar sem sótt var í fyrirmynd til sjávarútvegs breyttu framleiðsluskilyrðum í greininni alveg gríðarlega. Það sem er hins vegar sorglegt að horfa upp á þegar horft er til þeirra mistaka sem þar voru gerð er að greinin var um leið undanþegin samkeppnislögum en er enn undirsett einhvers konar opinberri verðlagningu. Og þrátt fyrir alla þessa byltingu í framleiðsluháttum í mjólkuriðnaði, þrátt fyrir stóraukna hagkvæmni, hafa neytendur í engu notið góðs af því, því að mjólkurafurðir hafa hækkað talsvert umfram matvælaverð almennt, eins og frægt er orðið, nú síðast með 15% hækkun á smjöri og liðlega 5% veginni hækkun á mjólkurafurðum heilt yfir ofan í u.þ.b. 2% verðbólgu.
Þarna er eitthvað athugavert. Við höfum í raun og veru umbunað þessari hagræðingu með ríflegri opinberri verðlagningu og aukinni tollvernd á greinina ofan í aukið hagræði. Það er það sem kallað er eftir þegar við ræðum fjárlög, þá skiptir ekki minna máli hvað við fáum fyrir það fjármagn sem við setjum í viðkomandi atvinnugreinar, (Forseti hringir.) og að við tryggjum þá líka að við sem almenningur í þessu landi, neytendur í þessu landi, njótum einnig góðs af því sem við erum að gera í einstökum atvinnugreinum.