fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að Ríkisútvarpið hefur fengið hækkanir. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir hvað það varðar. Ef ég miða við síðustu tvö ár hefur raunaukningin verið 332 millj. kr., bara með nýjum greiðendum. Á því tveggja ára tímabili hefur orðið umfangsmikil aukning og þá er ekki tekið tillit til þróunar vísitölu neysluverðs.
Ég held að afar brýnt sé, eins og fram kom í kynningu hjá mér í vikunni, að við jöfnum þann leik. Við þurfum að hafa frjálsa fjölmiðla og líka ríkisútvarp, en það þarf að jafna leikinn. Við þurfum að fara í aðgerðir til að stuðla að því að einkareknir fjölmiðlar nái að blómstra og dafna.
Þær breytingar sem hafa átt sér stað á rekstrarumhverfi fjölmiðla hafa verið ansi hraðar. Það verður auðvitað að vera þannig að við getum haft umhverfið sjálfbært og skilvirkt og þess vegna þurfum við líka að taka tillit til þess hvernig þróunin hefur verið hjá Ríkisútvarpinu á auglýsingamarkaði og hvernig sú þróun er yfir höfuð.
Mér finnst afar brýnt að fram komi að við viljum öflugt ríkisútvarp, en við þurfum líka að horfa til þess hver tekju- og rauntekjuaukningin hefur verið á síðustu árum. Eins og ég sagði er raunaukningin 332 milljónir á tveggja ára tímabili.