149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[16:20]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Á sömu nótum tek ég undir þessa tillögu og bæti við safn fyrir börn. Þau eru mjög merkileg og skemmtileg í þeim löndum sem ég hef heimsótt þau í. Áfram meira svona.

Til viðbótar ætla ég að spyrja hæstv. ráðherra um þrjú atriði. Í fyrsta lagi um bókaskattinn og niðurfellingu hans, eða ekki niðurfellingu á virðisaukaskattinum, hvaða áhrif breytingin á þeirri stefnu yfir í það sem er sett fram í fjárlagafrumvarpinu hefur á höfunda, því að þeir eru líka hlutaðeigendur þarna og réttara sagt mjög mikilvægir því að annars væru bækurnar ekki til.

Í öðru lagi rannsóknir, t.d. í háskóla eða annars staðar. Markmið Vísinda- og tækniráðs, heildarmarkmiðið sem hefur verið lagt mjög upp með, en er ekki bein aðgerð í núverandi stefnu, er að 3% af vergri landsframleiðslu verði varið til rannsóknarvinnu. Hvar er sú stefna í kortunum? Hvar erum við stödd miðað við þá stefnu í þessu fjárlagafrumvarpi?

Þá spyr ég á svipaðan hátt um þau markmið að komast í meðaltal OECD sem er að sjálfsögðu ekki þar sem við eigum að vera, við eigum að vera ofar miðað við hversu rík þjóð við erum, og, jú, næst er að stefna á meðaltal Norðurlanda. Hæstv. ráðherra sagði einmitt í framsöguræðu sinni að miðað við hækkun, aðallega háskóla, undanfarin ár værum við óvænt að fara að ná þessu markmiði 2020. Mig langar til að fræðast aðeins meira um þetta því að t.d. á málefnasviði háskóla er stór hluti, 1,5 milljarðar, í bundnum útgjöldum sem væntanlega fellur burt þegar búið er að klára þau verkefni. Hvernig stöndum við þá?