fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Varðandi beinan stuðning við bókaútgáfu er gert ráð fyrir því á tekjuhliðinni. Ég vil taka það skýrt fram.
Hv. þingmaður nefnir samskiptamiðla og hina stafrænu veröld en það verður sérstakur liður í því þegar við mótum menntastefnu til ársins 2030 sem heitir hreinlega Stafræn tækni og menntun. Öll sú þróun gerist svo rosalega hratt þessa dagana að við sem erum foreldrar eigum fullt í fangi með að fylgjast með því hvað börnin okkar eru að gera í samskiptum, leikjum og öðru slíku. Auðvitað hefur maður áhyggjur af því að ein stærsta skýribreytan fyrir vaxandi kvíða sé mögulega aukin þátttaka á samfélagsmiðlum. Það sem við gerum í mótun menntastefnu er að skoða sérstaklega heilbrigði og vellíðan og tengja það við stafræna tækni, menntun og geðheilbrigði. Við sjáum í erlendum rannsóknum að bæði sjálfsmorðstíðni og annað hefur aukist í takt við aukna notkun á slíkum miðlum.
Það er mjög erfitt að segja til um nákvæmlega hver helsta skýribreytan er en við lítum til þess. Ég vil líka taka fram að það er ráðherranefnd sem fjallar um jafnréttismál. Þar tökum við sérstaklega á ofbeldi af þessu tagi. Ég vil einnig taka fram að við erum búin að móta mjög markvissar tillögur er varða #églíka-byltinguna og íþróttir og erum með heilan samskiptafulltrúa sem á að fást miðlægt við það. Ég mun svo leggja fram frumvarp þess efnis á haustdögum.