149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:41]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra fyrir innleggið. Það eru tvö mál sem ég myndi vilja eiga orðastað við hann um. Í fyrra andsvari mínu vil ég beina sjónum að þeirri metnaðarfullu aðgerðaáætlun sem ríkisstjórnin hefur kynnt, það eru 6,8 milljarðar sem fara á næstu fimm árum. Ég hef verið pínulítið upptekinn af því, ég skal viðurkenna það, að horfa á bindingu, ekki einungis losun heldur hvaða árangri við getum náð í bindingu; breytt landnýting, endurheimt votlendis þar sem það á við og skógrækt. Mér finnst eins og við séum að einhverju leyti að missa af tækifærinu með því að samþætta ekki betur í aðgerðaáætluninni markmiðin þegar kemur að bindingunni og stefnu okkar í landbúnaðarmálum og búvörusamninga.

Ég átti orðastað fyrr í dag við hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og innti eftir þessu. Ég velti fyrir mér hvernig þessir tveir hæstv. ráðherrar ætli í framhaldinu að reyna að samþætta þetta. Það skiptir alveg gríðarlega miklu máli. Þetta er ekki aðeins spurning um umhverfismál, þetta er ekki aðeins spurning um að við náum markmiðum okkar í loftslagsmálum, þetta er líka spurningin (Forseti hringir.) um að við getum nýtt okkur tækifærið til að byggja undir og styrkja búsetu í landinu. (Forseti hringir.) Mér finnst við vera að missa af tækifærinu.