149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[22:47]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að taka undir með þeim þingmönnum sem hafa talað á undan mér um gagnsemi þessarar umræðu sem hefur um margt verið mjög góð. Ég held að að stærstum hluta hafi hún verið málefnaleg, yfirgripsmikil og fyrir 1. umr. fjárlagafrumvarps alveg klárlega framför frá því sem áður hefur verið. Við fáum meiri dýpt í umræðuna strax í upphafi og hér er auðvitað mjög mikilvægt að vel takist til við þær breytingar sem lagt var upp með á umgjörð ríkisfjármálanna fram á veginn með lögum um opinber fjármál og hvernig við vinnum úr þeim.

Það er margt í þessu fjárlagafrumvarpi sem ber að lofa. Forgangsröðunin er skýr, hún er skýr í átt að velferðarkerfunum okkar, að heilbrigðiskerfinu, að menntakerfinu að hluta. Allt er þetta vel og í takt við þá kröfu sem hefur verið uppi í samfélaginu og í takt við áherslur t.d. síðustu ríkisstjórnar í forgangsröðun.

Það kemur hins vegar kannski ekki á óvart úr þessari átt að það sem helst er ámælisvert við þessi fjárlög, og er í anda fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar, er algjör skortur á aðhaldssemi, á ráðdeild í rekstri ríkissjóðs og raun þeirri hugsun að mörg kerfi ríkissjóðs má bæta án þess að endilega þurfi að fylgja því stórkostleg útgjaldaaukning. Bætta nýtingu fjármagns mætti nefna. Auðvitað snýst þetta á endanum allt um forgangsröðun og hvað hægt er að gera á hverjum tíma. Þar þurfum við auðvitað að horfa á eitt af lykilgildum laganna um opinber fjármál sem er sjálfbærni ríkisfjármálanna til lengri tíma litið, að við getum staðið undir þeim útgjaldaloforðum sem við erum að veita, líka þegar verr árar, án þess að ríkissjóði eða afkomu hans sé stefnt í voða. Það er auðvitað reynsla undangenginna ára og áratuga að við höfum því miður þurft að skera niður í mjög mikilvægum velferðarkerfum hjá okkur á tímum niðursveiflu þegar almenningur má síst við slíkum niðurskurði og jafnvel grípa samhliða til skattahækkana eins og í síðustu kreppu. Það er auðvitað afleit sveiflujöfnun, getum við sagt, í ríkissjóð, því þetta er í raun og veru sveiflumögnun. Mér sýnist því miður, þegar horft er á fjármálastefnu og fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, að hér sé verið að endurtaka hagstjórnarmistök fyrri ára og raunar áratuga. Það er ágætt að grípa niður í nýlegri skýrslu peningastefnunefndar, með leyfi forseta:

„Á þriðja áratug tuttugustu aldar varð til nýtt flokkakerfi sem byggðist á stéttabaráttu og er gjarnan vísað til sem fjórflokksins. Af einhverjum ástæðum hefur hefðbundin hagstjórn — sem byggir á því að beita stjórntækjum peninga- og ríkisfjármála til þess að dempa hagsveiflur — aldrei átt afdrep í þessu „nýja“ kerfi. Önnur pólitísk markmið — atvinnumál, velferðarmál, byggðastefna eða einfaldlega óskin um að vinna næstu kosningar — hafa alltaf haft forgang yfir það verkefni að viðhalda efnahagslegum stöðugleika.“

Þetta er auðvitað það sem hæstv. fjármálaráðherra vísaði til í umræðunni fyrr í kvöld, það sem hann nefndi pólitískan veruleika. En það er á ábyrgð okkar sem hér sitjum að tryggja einmitt stöðugleika. Hvernig náum við þessum efnahagslega stöðugleika, hvernig náum við vaxtastigi niður? Hvernig náum við verðbólgu niður? Við höfum jafnvel frá þjóðarsátt upplifað miklar sveiflur og þrátt fyrir að okkur hafi tekist betur upp en á fyrri áratugum er meðalverðbólga á þessu tímabili samt um 5%. Meðalvaxtamunur okkar við þau ríki sem við viljum bera okkur saman við er líka um 5%. Þetta er það sem almenningur greiðir fyrir agaleysi okkar í hagstjórninni og ekki hvað síst í ríkisfjármálum. Þar er síendurtekið stef að auka útgjöld á tímum uppsveiflu, magna uppsveifluna og þurfa síðan að draga aftur úr útgjöldum á tímum niðursveiflu af því að það eru ekki til fjármunir í ríkissjóði til að standa við þau loforð sem gefin voru á betri tímum.

Þetta er sá veruleiki, vissulega ekki pólitískur, en sá veruleiki sem við verðum að horfast í augu við. Þegar ég hlusta eftir útskýringum hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra á þessu umhverfi er tvennt helst tínt til, að við höfum gert svo mikið í að bæta vinnubrögðin í kringum fjárlagavinnuna og í kringum fjármálastefnuna. Það er vissulega rétt að við höfum stórbætt áætlanagerðina. Við höfum stórbætt upplýsingagjöfina, en þetta minnir mig dálítið samt á skipstjóra sem keyrir alltaf upp á sama skerið en endurnýjar bara siglingatækin. Hann leggur út stefnuna betur en stefnan er óbreytt. Það er ekki til úrbóta í þeim vanda sem við glímum við. Við höfum alltaf siglt ríkisfjármálunum upp á sker. Í þetta skiptið sé ég ekki að stefnunni hafi verið neitt breytt hvað það varðar. Við höldum áfram sama kúrs, munum vafalítið enda með sömu afleiðingar og fyrr. Það er auðvitað afleitt að horfa upp á það að við séum ekki að draga ríkari lærdóm af nýlegri sögu en raun ber vitni.

Það verður að stýra ríkisfjármálunum í takt við hagsveiflu. Ríkisfjármál verða að taka undir með Seðlabanka í stjórn hagkerfisins, ef svo mætti að orði komast. Þetta er auðvitað það sem hefur verið ítrekað bent á í öllum þeim skýrslum sem gerðar hafa verið í kjölfar hrunsins. Ráðleggingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ráðleggingar samráðsvettvangs um aukna hagsæld, athugasemdir hinna fjölmörgu hagsmunaaðila og hagfræðinga, hafa allar verið á þennan sama veg; við verðum að bæta hagstjórnina.

Það er miður þegar við horfum síðan upp á það að ríkisstjórn sem er andvíg róttækum breytingum í peningastjórn en hyggst leggja fram frumvarp um seðlabanka síðar í vetur með lagfæringum á núgildandi peningastjórn tekur ekki á grunnvandanum sem var einmitt niðurstaða þessarar sömu peningastefnunefndar, að við yrðum að spila eftir leikreglunum ef við ætluðum að ná bættum árangri.

Það er ýmislegt sem má tína til sem ég held að sé mjög mikilvægt fyrir okkur að bæta verulega. Í fyrsta lagi er það auðvitað markmiðssetning og árangursmat. Við erum með mjög óljósa mælikvarða á árangur þeirrar stefnu sem mörkuð er í ríkisfjármálum, hvað við erum að fá fyrir þá fjármuni sem settir eru í einstaka málaflokka. Við erum með mjög óljóst kostnaðarmat til grundvallar áformum ráðherra um aukin útgjöld. Það er mjög óljóst hvað aðgerðirnar muni kosta eða hvaða árangri þær muni skila.

Enn fremur hefur komið fram í umræðunni hér að það er fjöldinn allur af aðgerðum eða áformum sem ekki er tekið á, hvorki í fjármálastefnu né fjárlagafrumvarpi þessa árs, og talað um að úr því verði bætt síðar. Það eru ekki öguð eða bætt vinnubrögð. Það hlýtur að þurfa að gera þá kröfu til þessara sömu ráðherra að þeir skeri einfaldlega niður önnur áform sín. Um það snýst forgangsröðunin í ríkisfjármálum.

Það sem við sjáum líka er það sem gagnrýnt hefur verið varðandi fjármálastefnuna sem slíka. Markmið hennar eða afkomumarkmið sem hlutfall af landsframleiðslu eru einmitt góð. Við sjáum það mjög skýrt í framlagningu þessa fjárlagafrumvarps að frá samþykkt fjármálastefnunnar fyrr á þessu ári er verið að auka frumútgjöld umtalsvert af því að vaxtakostnaður dróst meira saman en ráð var fyrir gert. Því svigrúmi er umsvifalaust eytt, það er ekki nýtt til bættrar afkomu ríkissjóðs. Það sýnir að afkomumarkmið sem sett er fram í fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar er ekkert annað en hreint og klárt gólf, mætti nánast kalla það þak, á afkomu ríkissjóðs á hverjum tíma. Úr þessu held ég að við verðum að bæta.

Niðurstaðan blasir hins vegar alveg skýrt við hjá okkur. Ríkisstjórnin stefnir hér að einhvers konar og frekar vafasömu Íslandsmeti í aukningu ríkisútgjalda. Ef við horfum bara á tiltölulega einfaldan mælikvarða sem eru ríkisútgjöld á mann á föstu verðlagi stefnir hér á gildistíma þessarar fjármálaáætlunar í tæplega fjórðungsaukningu þessara sömu útgjalda, úr u.þ.b. 2,2 milljónum á mann í 2,7 milljónir. Ég hygg að í seinni tíð höfum við ekki séð jafn mikla eða hraða aukningu ríkisútgjalda og hér er stefnt að. Ég endurtek fyrri aðvörunarorð mín: Fyrir þessu mun ekki reynast innstæða nú frekar en fyrr og afleiðingar þessarar eyðslustefnu ríkisstjórnarinnar munu verða hinar sömu. Við munum búa við óstöðugra efnahagslíf, sveiflukenndara efnahagslíf, hærra vaxtastig en ella og hærri verðbólgu en ella.