óréttmæti málshöfðunar Alþingis gegn ráðherrum og afsökunarbeiðni.
Hæstv. forseti. Það er allt í lagi að velta þeirri spurningu fyrir sér hvort þetta sé rétta aðferðin, hvort við eigum að gera svona. Mér finnst ekkert óeðlileg umræða um hvernig við getum gert þetta. Það sem ég segi bara er að þessi mikla ákæra í mörgum alvarlegum liðum, þar sem alls staðar var sýknað, segir manni að þetta hafi a.m.k. verið misheppnuð för.
Af því að ég hef unnið svo lengi í þessu kerfi hefur mér verið afskaplega umhugað um að menn sem fara með vald, ekki síst ákæruvald, fari vel með það, vandi sig og verði nokkuð vissir um að einhver árangur náist. Þarna horfi ég á gamlan ákæranda sem ég fullyrði að fór mjög vel með ákæruvald sitt, hv. þm. Karl Gauta Hjaltason.
Þetta skiptir máli. Þetta skiptir mig máli vegna þess að við getum ekki alltaf bara sagt: Ef þetta er vitlaust leiðrétta dómstólarnir það. Bara það að fá ákæru er afskaplega þungbært og felur í sér löng málaferli. Dómstóll götunnar tekur oft við. Þótt maður sé sýknaður af dómi er önnur niðurstaða hjá dómstóli götunnar.
Ákæruvald er svo mikilvægt vald að menn geta ekki ákært af neinni léttúð, ekki pólitík eða neinu slíku. Það er það sem ég er að reyna að koma að. Þess vegna er ég aðili að þessari þingsályktunartillögu.
Það má vel vera að hægt hefði verið að gera hlutina einhvern veginn öðruvísi. Við getum alveg tekið debatt um það. En ég myndi aldrei vilja fara að réttlæta það og segja að þetta væri bara búið og gert, þetta væri bara eitthvert gamalt uppgjör og spyrja hvort það væri ekki óþarfi.
Við biðjumst afsökunar og velvirðingar á því að við gerum einhverja vitleysu þó að hún sé gömul.