149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

mannanöfn.

9. mál
[15:50]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. flutningsmanni erindi sitt. Mig langar að tæpa á tveimur, þremur atriðum sem ég er mjög ánægður með í frumvarpinu. Í fyrsta lagi er sú góða breyting sem orðið hefur á 2. gr. þess frá því að það var síðast lagt fram, að nú sé það tekið úr höndum fulltrúa trúar- og lífsskoðunarfélaga að skrá nöfn og það sé einfaldlega hlutverk foreldra að ganga til skráningar hjá Þjóðskrá Íslands. Þetta er í samræmi við þingsályktunartillögu sem ég hef flutt með nokkrum öðrum þingmönnum á fyrri þingum.

Þá fagna ég náttúrlega að það sé verið að steypa saman ættar- og millinöfnum. Þetta er einhver grautur sem við Jónssynirnir höfum aldrei skilið almennilega, einhver munur á nöfnum eftir því hvort þau eru ættar- eða millinöfn.

Svo lýsi ég að sjálfsögðu mikilli ánægju með að það eigi að jafna rétt transfólks.

Þar sem þingmanninum verður tíðrætt um að lögin einkennist af forræðishyggju spyr ég mig hins vegar hvort hann falli ekki sjálfur í gryfju forræðishyggju að ætla eftir sem áður að skylda fólk til að skrá nöfn. Af hverju á ríkið endilega að halda nafnaskrá (Forseti hringir.) yfir þjóðina? Erum við ekki með kennitölur sem veita aðgang að allri helstu þjónustu hins opinbera? Hér viðheldur boðberi frjálslyndis einhverju forneskjulegu nafnakerfi í þágu þess að afnema forræðishyggju, að eigin sögn.