149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

erfðafjárskattur.

10. mál
[18:01]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það kemur fram með skýrum hætti í greinargerð þessa frumvarps að þegar erfðafjárskatturinn var hækkaður árið 2010 var sú hækkun hluti af mjög umfangsmiklum aðgerðum til að afla ríkissjóði tekna í ljósi sérstakra og erfiðra aðstæðna. Ef þingmaðurinn vill kalla það lúsahreinsun að láta síðan skatta og gjöld lækka með hliðsjón af betri hag ríkisins er það lúsahreinsun.

Menn gátu fært rök fyrir þessari hækkun. Ég vek athygli á því að meira að segja vinstri stjórn taldi ekki rétt að fara upp fyrir 10% með þennan skatt, en tvöfaldaði hann. Nú árar betur hjá ríkissjóði. Þá finnst mér rétt (Forseti hringir.) að þegar ríkissjóður nýtur góðærisins láti hann koma til baka þær (Forseti hringir.) álögur sem voru hækkaðar eða lagðar á og voru örugglega færð góð og gild rök fyrir á sínum tíma í ljósi erfiðra aðstæðna.