byggðakvóti.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Já, það er rétt, það liggja fyrir ákveðnar tillögur úr vinnu fyrrverandi sjávarútvegsráðherra í þessum efnum sem snúa að byggðakvótanum. Raunar meira, það eru um 26.000 tonn, ef ég man rétt, í þessar ráðstafanir sem sjávarútvegsráðherra hefur undir höndum og gerir það ráðuneyti þá nánast að stærsta útgerðaraðila landsins. Af því leiðir að þarna undir eru miklir hagsmunir sem snerta fjöldann allan af byggðum, einstaklingum og fyrirtækjum.
5,3% af kvótanum fara í svona sérstakar aðgerðir og í stjórnarsáttmálanum er beinlínis kveðið á um það að endurskoða eigi fyrirkomulagið sem gildir um úthlutun þessara potta sem kallað er, þessara 5,3% af heildarfiskveiðiheimildum landsins. Það verk er í undirbúningi hjá mér í ráðuneytinu. Við það verk sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála kemur sú vinna sem hv. þingmaður vitnaði hérna til sem var unnin undir forystu Þórodds Bjarnasonar. Hún kemur að sjálfsögðu inn í það verk en á þessu stigi er í raun ekkert hægt að segja með hvaða hætti þetta verður gert eða hver niðurstaðan af því verður.
Það er full ástæða í mínum huga til að fara yfir bæði verkferla og regluverkið allt varðandi þær fiskveiðiheimildir sem þarna eru geymdar. Ég skal taka umræðuna í síðara andsvari um það hvernig væri hugsanlega hægt að breyta áherslunum við útdeilingu þessara verðmæta eða þeirra gæða sem þarna eru undir.