149. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2018.

um fundarstjórn.

[15:05]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni hér á undan. Þetta er alveg með eindæmum. Við erum að tala um virðingu Alþingis, að efla þingið og sýna störfum þess virðingu en síðan farið að ræða jafn mikilvægt plagg, langtímastefnumótunarplagg eins og samgönguáætlun er, í fjölmiðlum hér fyrir helgi og að sjálfsögðu beinast spurningar strax til þingmanna stjórnarandstöðu sem hafa ekkert séð, enga kynningu fengið og stendur ekki til að halda neina slíka kynningu. Sífellt er boðað fundarfall í umhverfis- og samgöngunefnd á sama tíma og ríkisstjórnarflokkarnir eru að kynna hver öðrum þessa samgönguáætlun.

Þetta er samgönguáætlun þingsins, ekki ríkisstjórnarinnar, og það er lágmarksvirðing gagnvart þinginu að kynna því öll þau áform sem þar eru uppi áður en farið er með þau í opinbera umræðu.