149. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2018.

vegalög.

32. mál
[17:44]
Horfa

Flm. (Karl Gauti Hjaltason) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Seinni hluti 2. gr. frumvarpsins er algjörlega óbreyttur frá núverandi lögum, þetta með ferjur sem eru mikilvægar fyrir ferðaþjónustu. Það er tekið óbreytt úr 22. gr. laganna. Ekki er um neina breytingu að ræða varðandi það að heimilt sé að ákveða fjárveitingu til greiðslu hluta kostnaðar við ferjur sem eru mikilvægar fyrir ferðaþjónustu. Þarna er ekki verið að breyta neinu.

Ég veit ekki nákvæmlega hvaða ferjur þetta eru. Hugsanlega er það eitthvað á Breiðafirði, hugsanlega einhverjar ferjur sem ég þekki ekki sem ríkið kæmi að. Ég þekki ekki fordæmin þarna.

Hann spurði um samgönguáætlun og kostnað. Ég geri ráð fyrir að ríkið muni áfram koma að þessum rekstri. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því og síðan verði skilgreint hvaða hlut farþegar og þeir sem njóta þjónustunnar muni taka þátt í kostnaði, alveg eins og við vegi sums staðar, t.d. í Hvalfjarðargöngum, og svo Vaðlaheiðargöngum sem verða brátt tekin í notkun. Ferjuleiðirnar verði þá greiddar niður af ríkinu en einnig taki farþegar þátt.

Umboðsmaður Alþingis hefur hvatt til þess að þessum lögum verði breytt og tekin upp skýrari afstaða ríkisins til þessara siglinga, að ríkið verði skyldað til að þjónusta þjóðferjuleiðir sem hefur ekki verið hingað til. Það hefur að sjálfsögðu sinnt þessu en hefur ekki verið skyldað til þess samkvæmt lögunum.