149. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2018.

vaktstöð siglinga.

81. mál
[15:06]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð. Ég hef stutta fyrirspurn til ráðherra varðandi réttindi og skyldur leiðsögumanns sem kemur fram í 2. gr. frumvarpsins. Þar segir, með leyfi forseta:

„Leiðsögumaður skal aðstoða við að koma skipi í festar þegar slík aðstoð er ekki fyrir hendi í viðkomandi höfn.“

Síðan segir:

„Leiðsögumaður skal í starfi sínu aðstoða yfirvöld við framkvæmd starfa þeirra.“

Mér finnst þetta vera svolítið óljóst og vítt. Ef hæstv. ráðherra gæti skýrt nánar hvað átt er við í raun og veru.