149. löggjafarþing — 34. fundur,  20. nóv. 2018.

ályktanir miðstjórnar Framsóknarflokksins.

[14:06]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir mjög áhugaverðar spurningar. Ég er sammála hv. þingmanni um að ályktanirnar voru sérstaklega áhugaverðar og góðar. Ég er bara glaður yfir því að þær hafi vakið athygli hv. þingmanns. Þær eru einmitt gerðar fyrir neytendur í landinu. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur ekki haldið áfram að lesa blöðin, en t.d. má sjá ágæta grein sérfræðings á sýklalyfjasviði, eftir lækni sem heitir Karl G. Kristinsson, þar sem hann talar um hvort fórna eigi meiri hagsmunum fyrir minni.

Á að fórna almannahagsmunum neytandans á Íslandi varðandi lýðheilsu, varðandi möguleika þess að geta áfram farið út í búð með öruggum hætti og verið viss um að maður geti keypt vöru sem ekki inniheldur sýklalyfjaónæmar framleiðsluvörur sérhagsmunafyrirtækjanna, sem hv. þingmaður og flokkur hans berst fyrir? Að þau fyrirtæki ráði för? Á þetta að snúast um stóru matvælafyrirtækin í heiminum sem eiga að stjórna öllu því sem borið er á borð fyrir neytendur í nafni þess að hugsanlega sé varan aðeins ódýrari og hugsanlega geti maður valið úr þremur eða fjórum öðrum vöruflokkum? En í staðinn skal neytandinn éta það sem framleitt er við aðstæður sem eru ekki þær sömu og á Íslandi. Það er nákvæmlega það sem áhugaverðu ályktanirnar frá Framsóknarflokknum fjölluðu um.

Við sögðum: Við erum í einstakri stöðu á Íslandi, einstakri. Það er ekkert annað land í heiminum þar sem til að mynda E. coli-bakterían finnst án sýklalyfjaónæmis. Þetta er eina landið í Evrópu, og því sunnar sem við komum í álfunni og því austar sem við förum því meira hækkar magn sýklalyfja sem notuð eru við framleiðsluna og áhættan á sýklalyfjaónæmum bakteríum sem koma þarna inn eykst, því miður.

Hv. þingmaður. Staðan er sú að sérfræðingar sem gerst þekkja segja að ef fram heldur sem horfir muni 10 milljónir manns deyja af völdum þessa fyrir árið 2050, eða jafnmargir og deyja af völdum krabbameins. Þetta eru raunverulegir hagsmunir neytenda í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)