149. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[16:53]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég geri athugasemd við þann lið í þessari grein sem lýtur að þangi og þara, sérstaklega klóþang vegna þess að klóþang er aðallega innan netlaga jarðanna, sem eru 150 metrar í stórstraumsfjöru. Geri ég athugasemd við að það skuli ekki vera tekið út fyrir sviga þó svo að lögin kveði á um annað. Það hefði þurft að vinna það betur og því mun ég sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu.