149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[23:55]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Þá deilum við þeim áhyggjum og fá menn nú áhyggjur af minna tilefni en því þegar við erum að tala um 25 milljarða og hvernig í málinu liggi. Manni kemur í hug það sem hefur komið fram í máli, að það sé eins og við eigum ekki að þurfa að skilja það heldur eigum við að treysta því að hér sé farið með rétt mál. Er það ekki vel. Einnig kemur mér í hug, af því hv. þingmaður vitnaði í greinar eftir Hörð Ægisson, sem ég var að glöggva mig á fyrr í dag og virðast mjög vel ígrundaðar og samansettar, að ummælin virðast heldur ekki hafa náð til þeirra sem valdið hafa í þeim greinum.