149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[04:04]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég verð að byrja á því að biðjast afsökunar ef ég hef komist óviðurkvæmilega að orði áðan. Ég gerði mér ekki grein fyrir því. En svo ég svari spurningu hv. þm. Bergþórs Ólasonar get ég ómögulega spáð í það hver framvinda málsins verður. Við erum bara að ræða málið fram og til baka og erum í raun og veru litlu nær vegna þess að við höfum verið í okkar flokki að ræða þetta okkar á milli. Við höfum óskað eftir því að aðrir þingmenn, og helst þeir sem mæltu fyrir málinu, útskýri vissa þætti en það hefur ekki gengið til þessa. Ég get því ómögulega gert mér grein fyrir hver framvinda málsins verður hvað það varðar.