149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

lengd þingfundar.

[11:15]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég hafði heldur ekki hugsað mér að rífast við forseta hér í ræðustól. Ég vildi bara minna á að við höfum takmarkað töluvert fundartíma okkar þingflokka á undanförnum misserum og það stefnir í að við gerum það líka í umræðum um fjármálaáætlun. Ég vildi bara árétta að ég tek undir að það er mjög mikilvægt að þingflokkar geti fundað en ég vil að við berum líka virðingu fyrir þeim tímum sem þingflokkar hafa eiginlega heilaga til þess að funda á mánudögum og miðvikudögum og að við reynum eftir fremsta megni að virða þá betur.