149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:54]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í karp milli FH og Vals. (Gripið fram í.)Það eru aðrir sem geta séð um það. Við félagar í Ungmennafélagi Svarfdæla getum litið stoltir fram á veginn, ég tala nú ekki um afrekin hér fyrr á tíð.

Ég þakka hv. þingmanni innleggið í lokin og þakka sömuleiðis þá umræðu sem hér hefur átt sér stað. Hún ber þess vitni að þingmenn sýna þessum málaflokkum mikinn áhuga og eru metnaðarfullir í þeim. Ég vænti góðs samstarfs við þingheim í þeim efnum hér eftir sem hingað til.