149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það sem af er umræðunni hefur verið mikið fjallað um hina meintu fyrirvara annars vegar, stöðu málsins gagnvart stjórnarskránni, hina stóru stjórnskipulegu fyrirvara, og hins vegar margs konar lagatæknileg atriði. Ég ætla í næstu ræðum mínum að reyna að varpa ljósi á spurninguna: Hvað svo? Hvað tekur við? Hvernig má sjá fyrir sér að umhverfi okkar þróist á næstu árum og áratugum, verði þessi innleiðing að veruleika?

Ég ætla að leyfa mér, svona til að ramma þá sýn inn sem ég ætla að koma með í næstu ræðu, að lesa upp pistil frá Viðari Garðarssyni sem birtist á bloggsíðu hans, vg.blog.is, hinn 16. maí síðastliðinn. Með leyfi forseta segir Viðar:

„Ég ætla í nokkrum línum að horfa á þetta mál út frá viðskiptalegum hagsmunum þjóðarinnar og setja fram sviðsmynd í framtíðinni. En það hefur sárvantað í þessa umræðu að framtíðin sé skoðuð í mismunandi sviðsmyndum. Orðið þjóðin í þessum skrifum mínum er hér notað sem samnefnari heimila og fyrirtækja hér á landi.

Horfum nú fram til ársins 2040 eða fram um ríflega 20 ár, mikil tækniþróun hefur átt sér stað á öllum sviðum, enda svokölluð fjórða iðnbylting verið á fullri ferð og ekki sér fyrir um allar þær breytingar sem eru að ganga yfir heiminn. Vegna breytinga á markaði, m.a. vegna mikillar gjaldtöku á kolefnisútblæstri á flutningum bæði hrávara og tilbúinna afurða, hefur stóriðjan að mestu farið úr landi þar sem orkuverð plús kolefnisgjald sem er óhagkvæmt hér vegna legu landsins, langt frá helstu uppsprettum hráefnis og mörkuðum, hefur orsakað það að stóriðnaðarframleiðsla er mun hagkvæmari annaðhvort hjá hráefnisuppsprettum eða við helstu markaðssvæði.“

Viðar heldur áfram, með leyfi forseta:

„Þessi þróun hefur haft það í för með sér að 80% af allri þeirri orku sem framleidd er hér á landi er ekki að seljast. Fjöldagjaldþrot blasir við í orkugeiranum ef ekki verður lagður hingað raforkusæstrengur eins fljótt og mögulegt er. Raforkuverð til þjóðarinnar rýkur hér upp úr öllu valdi vegna rekstrarerfiðleika raforkuframleiðenda sem þrýsta nú sem aldrei fyrr á verðhækkanir og lagningu raforkusæstrengs. Þingmenn eiga ekki annan kost til þess að stemma stigu við þeim vandræðum sem orkufyrirtækin eru komin í heldur en að samþykkja lagningu sæstrengs til landsins.“

Ég held áfram, með leyfi forseta:

„Tenging sæstrengs virkjar jú öll ákvæði þriðja orkupakkans og þeirra pakka sem á eftir koma. Þá dynur á þjóðinni það framsal fullveldis sem innbyggt er í þennan reglubálk. ACER og „National Regulator“ (landsreglarinn) sem báðir lúta valdi framkvæmdastjórnar ESB, þessir aðilar munu hafa lokaorð um hversu mikla orku má flytja út og á hvaða verði. Þjóðin mun þurfa að sætta sig við að þrátt fyrir miklar auðlindir landsins mun Evrópusambandið ákvarða orkuverð það sem þjóðinni er boðið til notkunar hér innan lands.

Mikill hluti þeirrar framleiðslu og nýsköpunar sem er í landinu mun færa sig nær mörkuðum, á eftir framleiðslunni og tækifærunum fer fjármagnið og síðan unga fólkið.“

Og Viðar heldur áfram, með leyfi forseta:

„Þetta er vissulega nokkuð dökk mynd sem ég dreg hér upp en hún er samt ekki óraunhæf. Hún gæti auðveldlega raungerst ef undanlátssemi Alþingis gagnvart erlendu valdi heldur áfram. Þannig tel ég að við getum ekki útilokað að hingað verði lagður sæstrengur. Það er ekki viðskiptalega klókt að vera búinn að binda í reglugerðir að kaupandinn ákveði á hvaða verði orkan verði seld þegar að því kemur.“

Og Viðar lýkur þessum pistli sínum á orðunum:

„Í stað þess að stagla um lögfræðileg álitaefni tel ég að við eigum að velta fyrir okkur framtíðinni og hvaða afleiðingar hljótast af gjörðum okkar núna. Ég skal viðurkenna að ég á erfitt með að sjá jákvæðar myndir til framtíðar á þessum orkupökkum ESB. Því lýsi ég eftir þeim frá þeim aðilum sem styðja þessa innleiðingu á þessu regluverki og lofa að ég skal hlusta með athygli.“

Svo mörg voru þau orð í þessum pistli Viðars Garðarssonar frá 16. maí síðastliðnum.

Viðar er bara einn af þeim fjölmörgu almennu borgurum sem hafa raunverulegar áhyggjur af því hvaða áhrif innleiðing þriðja orkupakkans hefur þegar hún er um garð gengin. Það er því miður svo að stuðningsmönnum orkupakkans og innleiðingar hans hefur mistekist fullkomlega að sannfæra bæði okkur efasemdamennina á þingi og allan almenning um ágæti þessarar innleiðingar. Og á þetta mun ég reyna að varpa ljósi (Forseti hringir.) í næstu ræðum mínum.