149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:22]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vek athygli á umsögn sem hv. fræðimenn Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson sendu utanríkisráðherra um þetta mál, dagsett 10. apríl 2009. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi lesið þá umsögn?