149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti er ekki sú ferðaskrifstofa sem skipuleggur ferðir hæstv. utanríkisráðherra en það er auðvitað hægt að grennslast fyrir um það í hans ráðuneyti og væntanlega ekki leyndarmál. Forseti veit heldur ekki fyrir víst hver gegnir fyrir hæstv. utanríkisráðherra sé það rétt að hann sé erlendis en hefur þó ástæðu til að ætla að það sé annaðhvort sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða iðnaðar- og ferðamála- og dómsmálaráðherra. Ég veit að þannig hefur það oftast verið ef hæstv. utanríkisráðherra hefur verið fjarverandi.