149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:06]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vildi láta þess getið að ég tók eftir ummælum hæstv. forseta sem snúa að þátttöku hv. formanns utanríkismálanefndar og viðveru í umræðunni. Ég leyfi mér að líta svo á að með orðum sínum hafi forseti leiðbeint hv. formanni um þingskyldur hennar. Miðað við ummæli sem féllu af hálfu hv. formanns hér í gær sýnist ekki hafa verið vanþörf á.