149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:11]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég ætla bara að benda á að flestar tilvitnanir í fyrrverandi hæstv. ráðherra og fyrrverandi hv. þingmenn hafa verið gerðar, með leyfi forseta, úr skriflegum heimildum. Ef ég man rétt hefur sá sem hér stendur t.d. vitnað til orða Tómasar Inga Olrichs úr blaðagreinum eftir hann og fleiri, bæði hæstv. ráðherra og þingmanna. Ég man að ég hef líka vitnað til orða Hjörleifs Guttormssonar, fyrrverandi hæstv. ráðherra, og fleiri, ævinlega með því að vitna til skriflegra heimilda sem ég hef haft meðferðis og lesið þær upp með leyfi forseta.