149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

almenn hegningarlög o.fl.

796. mál
[10:51]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Með þessu frumvarpi, sem væntanlega verður samþykkt núna, er verið að taka ákveðið skref varðandi kennitöluflakk og það er jákvætt. Hins vegar finnst mér afar mikilvægt að við þingmenn sjáum til þess að stjórnvöld standi við það fyrirheit sitt að gera enn betur og taka stærri skref strax á næsta þingi.