149. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2019.

póstþjónusta.

270. mál
[21:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um póstþjónustu frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Eins og hæstv. forseti fór yfir liggur frumvarpið fyrir á þskj. 293, nefndarálitið á þskj. 1916 og breytingartillögur á þskj. 1917. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín á fund allmarga gesti. Þá bárust 11 umsagnir ásamt minnisblöðum frá ráðuneyti.

Með frumvarpinu er lagt til að samþykkt verði ný lög um póstþjónustu sem leysi af hólmi lög nr. 19/2002. Meginefni frumvarpsins er afnám einkaréttar ríkisins á póstmarkaði og opnun markaðar auk þess sem alþjónusta í pósti er tryggð og kveðið á um hvernig fara skuli með kostnað við alþjónustu ef hún er ekki leyst af hendi á markaðslegum forsendum. Með frumvarpinu eru efnisákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins frá 2008 um frekari breytingar á pósttilskipun (þriðja pósttilskipunin) leidd í íslenskan rétt. Meiri hlutinn telur frumvarpið mikilvægt skref í þróun póstmarkaðar en með því er einkaréttur ríkisins á póstmarkaði afnuminn en Ísland er eina ríkið innan EES sem hefur ekki afnumið einkaréttinn og innleitt þriðju pósttilskipunina. Umsagnir um málið voru að meginstefnu jákvæðar en ljóst er að afnámi einkaréttarins fylgja ýmis úrlausnarefni og áskoranir.

Um það leyti sem nefndin lauk umfjöllun um frumvarpið lauk Ríkisendurskoðun úttekt á tilteknum atriðum í rekstri Íslandspósts og skilaði skýrslu til Alþingis. Sú úttekt var gerð í framhaldi af beiðni fjárlaganefndar. Meiri hlutinn bendir á að umfjöllun um skýrsluna frá Ríkisendurskoðun og innihald hennar hefur ekki farið fram í nefndum þingsins. Meiri hlutinn áréttar að gefi umfjöllun nefnda þingsins tilefni til frekari lagabreytinga eða aðgerða varðandi póstþjónustu getur umhverfis- og samgöngunefnd hvenær sem er lagt fram frumvarp til breytingar á lögum um póstþjónustu eða tillögu til þingsályktunar. Þá bendir meiri hlutinn á að lög um póstþjónustu taka gildi um næstu áramót og því er svigrúm til viðbragða ef þörf reynist. Þó er brýnt að ákvörðun Alþingis um afnám einkaréttar á póstþjónustu liggi fyrir tímanlega til að nauðsynlegur undirbúningur geti hafist og nægilegt svigrúm gefist til undirbúnings áður en lögin taka gildi.

Nefndarálitið er allítarlegt. Ég mun ekki fara yfir það alveg frá orði til orðs en fyrsti kaflinn fjallar um samkeppni á póstmarkaði. Einn megintilgangur frumvarpsins er afnám einkaréttar ríkisins á póstmarkaði. Með frumvarpinu er því verið að opna fyrir möguleika á samkeppni á þeim markaði. Að mati meiri hlutans er afnám einkaréttarins tímabært skref. Óvíst er þó hvort og hve mikil samkeppni verður á þessum markaði enda hefur almennum bréfasendingum fækkað umtalsvert á síðustu árum, auk þess sem hlutverk póstþjónustu hefur breyst mikið með tilkomu rafrænna samskipta. Ljóst er þó að póstþjónusta er lykilþáttur í vefverslun einstaklinga sem vex stöðugt, m.a. á landsbyggðinni þar sem langt er að sækja verslanir. Póstþjónusta er einnig mikilvæg fyrir atvinnurekstur sem treystir á þjónustu við aðföng og sölu á vöru, m.a. í gegnum vefverslun sem getur verið staðsett hvar sem er á landinu. Þróun póstmarkaðarins hefur verið hröð síðustu ár og er líklegt að svo verði áfram. Tíminn verður því að leiða í ljós þá þróun sem verður á póstmarkaði sem samkeppnismarkaði.

Næsti kafli í álitinu fjallar um gildissvið sem 2. gr. frumvarpsins kveður á um. Í þeim kafla er einfaldlega áréttað að með þessu frumvarpi verður engin breyting á skilum milli landflutninga og póstþjónustu. Hún er óbreytt með þessu frumvarpi.

Þá kemur kafli um inntak alþjónustu sem er 9. gr. frumvarpsins. Mælt er fyrir um inntak alþjónustu í 9. gr. en alþjónusta er lágmarkspóstþjónusta sem allir notendur póstþjónustu skulu eiga aðgang að á jafnræðisgrundvelli. Með ákvæðinu er miðað við að dreifing á póstsendingum innan alþjónustu verði tveir dagar að jafnaði í viku en ráðherra verði veitt heimild til að fækka dreifingardögum með reglugerð. Fram kom mikil gagnrýni á þá heimild ráðherra og bent á að fækkun dreifingardaga og þar af leiðandi tæming póstkassa gæti haft mikil áhrif á einstaklinga og atvinnurekstur, ekki síst í dreifbýli, m.a. fyrirtæki sem senda vörur til viðskiptavina í öðrum landshlutum og fyrir rekstraraðila sem reiða sig á að fá sendingar, svo sem varahluti eða lyf, í pósti. Meiri hlutinn telur brýnt að viðunandi þjónustustigi sé viðhaldið í póstþjónustu og bendir á að stórbættur aðgangur landsbyggðarinnar að háhraðatengingum leysi ekki öll viðfangsefni en ljóst er að pakkasendingar geta ekki farið í gegnum rafrænar tengingar. Meiri hlutinn telur þó rétt að til staðar sé heimild til að fækka dreifingardögum, séu fyrir hendi sérstakar aðstæður eða vegna þarfa notenda á svæðinu, landfræðilegra aðstæðna eða tæknilausna, enda sé mögulegt að uppfylla þarfir notenda á annan hátt. Leggur meiri hlutinn til orðalagsbreytingu í 41. gr. þessu til samræmis. Beinir meiri hlutinn því til ráðherra að líta til framangreindra sjónarmiða við setningu reglugerðar um dreifingardaga í alþjónustu.

Þá leggur meiri hlutinn áherslu á að tækifæri geta verið til samnýtingar ferða verktaka í póstþjónustu og annarrar akstursþjónustu í dreifðum byggðum, enda sé farið að ríkisstyrkjareglum EES og samkeppnislögum.

Að mati meiri hlutans er nauðsynlegt að inntak alþjónustu og gæði hennar séu tekin til skoðunar með reglubundnum hætti með hliðsjón af þörfum neytenda á sviði póstþjónustu, breytingum á tæknilausnum og breyttum verslunarháttum. Þar verði t.d. skoðað hvort réttara sé að miða alþjónustu við afhendingartíma fremur en fjölda dreifingardaga. Með frekari tæknivæðingu felast einnig tækifæri til að auka upplýsingagjöf til neytenda, svo sem um stöðu sendingar og þá hvenær og hvar sé hægt að nálgast sendingar sem og tilkynningar neytanda til póstrekanda um eftirspurn eftir þjónustu á tilteknum stað og tíma.

Þá kemur kafli um val á þjónustuveitanda í alþjónustu sem fjallað er um í 11. gr. Þar er að finna ákvæði um val á þjónustuveitanda sem skylt er að veita alþjónustu. Gert er ráð fyrir þremur mismunandi leiðum til að tryggja alþjónustuna, þ.e. að gerðir séu samningar um veitingu þjónustunnar, að þjónustuveitandi sé útnefndur eða að farið sé í útboð. Ráðherra er falið að ákveða hvaða leið er farin. Meiri hlutinn leggur áherslu á að við þá ákvörðun verði litið til þess að tryggja að gagnsæi sé til staðar, m.a. um kostnað þjónustu. Að auki er nauðsynlegt að ákvörðun byggist á nauðsynlegum upplýsingum. Þá er í 11. gr. að finna heimild ráðherra til að láta framkvæma markaðskönnun þar sem metið er hvort nauðsynlegt er að tryggja alþjónustu með samningi eða útnefningu. Líkt og kemur fram í greinargerð getur slík markaðskönnun m.a. leitt í ljós áhuga markaðsaðila á að veita þá þjónustu sem skilgreind er í lögum sem alþjónusta á markaðsforsendum. Leiði könnunin í ljós að markaðurinn muni ekki leysa af hendi lágmarksþjónustu væri það ráðherra að taka ákvörðun um næstu skref til að tryggja þjónustuna. Að mati meiri hlutans ber að vinna að því fullum fetum að stuðla að því að komið verði á samkeppni á póstmarkaði, enda er það í samræmi við meginefni frumvarpsins um opnun póstmarkaðar fyrir samkeppni með því að afnema einkarétt ríkisins. Telur meiri hlutinn því mjög jákvætt að ákvörðun sé tekin á grundvelli markaðskönnunar og áréttar að unnt er að vinna slíkar kannanir fyrir afmörkuð svæði og/eða póstnúmer.

Nefndin ræddi hvort erindi væri til að skylda ráðherra til að framkvæma markaðskönnun áður en tekin er ákvörðun um val á þjónustuleið. Meiri hlutinn telur það ekki tímabært, enda muni það taka markaðinn tíma að aðlaga sig að breyttum reglum og aðstæðum. Meiri hlutinn leggur því ekki til breytingu hvað þetta varðar en ítrekar mikilvægi þess að þegar aðstæður leyfa verði ákvarðanir um val á leið til að tryggja þjónustu byggðar á slíkum markaðskönnunum. Meiri hlutinn leggur þó til breytingu á 3. mgr. 11. gr. þess efnis að útboði verði bætt við, enda er ákvæðinu vissulega ætlað að ná til allra þriggja leiðanna sem hægt er að fara til að tryggja lágmarksþjónustu.

Þá er næst fjallað um gjaldskrá alþjónustuveitanda með vísan til 17. gr. og þar leggur nefndin til breytingu. Með vísan til jafnræðis og byggðasjónarmiða telur meiri hlutinn rétt að gjaldskrá fyrir þjónustu innan alþjónustu sé sú sama um allt land og leggur til breytingu á 17. og 18. gr. því til samræmis.

Næst kemur svo kafli um viðurlög í 40. gr. en eins og oft kemur fram í þessum ræðustól er mikilvægt að refsiheimildir laga séu skýrar og afdráttarlausar og uppfylli ákvæði 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrár lýðveldisins, nr. 33/1944, um skýrleika refsiákvæða. Nefndin taldi skorta á að það væri skýrt á hvaða ákvæðum brot sættu viðurlögum og leggur til breytingu til að skýra það.

Næsti kafli fjallar svo um erlendar póstsendingar og rafrænar sendingar. Með breytingum á lögum um póstþjónustu sem voru gerðar fyrr á þessu þingi með lögum nr. 23/2019 þess efnis að rekstraraðila varð heimilt að setja gjaldskrá fyrir erlendar póstsendingar sem eiga að mæta raunkostnaði við sendingar og sömuleiðis breytingar þar sem áréttað var að íslensk póstlög gengju framar alþjóðaskuldbindingum á sviði póstmála. Þessar breytingar voru gerðar fyrr á þessu þingi og í samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið eru gerðar breytingar á frumvarpinu þannig að það verði samhljóða þeim breytingum sem hafa nú þegar tekið gildi. Þeim breytingum fylgir svo að nefndin leggur til að 4. mgr. 38. gr. falli brott, enda er brugðist við á óhagstæðum endastöðvargjöldum í áðurnefndri breytingu. Meiri hlutinn ítrekar það sem fram kom í nefndaráliti með því frumvarpi sem varð að lögum nr. 23/2019, að gjald þetta fyrir móttöku erlendra sendinga sé ekki notað til að standa straum af neinum öðrum kostnaði en þeim sem beint má leiða af hinum erlendu póstsendingum. Þá sé brýnt að neytendur geti með auðveldum hætti kynnt sér á einum stað hvaða gjöld þurfi að greiða fyrir móttöku erlendra póstsendinga og að ljóst sé fyrir hvaða þjónustu sé greitt hverju sinni.

Þá beinir meiri hlutinn því til Póst- og fjarskiptastofnunar og veitenda póstþjónustu að gjaldskrá miði að því að hvetja til hagræðingar þannig að sem minnstur kostnaður leggist á jafnt veitendur þjónustu sem viðtakendur, t.d. að viðtakandi sem sækir böggul tímanlega á pósthús greiði ekki fyrir kostnaði við geymslu og heimsendingu.

Þá er næst kafli um óumbeðnar fjöldasendingar sem er 28. gr. Nefndin ræddi nokkuð hvernig mætti draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum óumbeðinna fjöldasendinga. Nefndin taldi ekki tímabært að gera neinar breytingar á þessu ákvæði en beinir því til ráðuneytisins að taka til skoðunar hvort rétt sé með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum að breyta skilyrðum fyrir viðtöku óumbeðinna fjöldasendinga, t.d. þannig að viðtakandi þurfi að óska eftir móttöku í stað þess að þurfa að óska sérstaklega eftir því að taka ekki á móti fjöldasendingum. Það er samt alveg ljóst að breyting skilyrða af þessu tagi krefst nokkurs aðdraganda og undirbúnings og kanna þyrfti ýmis sjónarmið.

Þá hafa stærri breytingarnar verið raktar en það eru nokkrar breytingar til viðbótar, t.d. er lagfærð skilgreining á ábyrgðarsendingu. Lögð er til skilgreining á hugtakinu sendandi og síðan eru lagðar til breytingar varðandi skráð heimilisföng einstaklinga og fyrirtækja, þ.e. þjóðskrá heldur utan um lögheimili einstaklinga en fyrirtækjaskrá utan um lögheimili fyrirtækja þannig að þarna er lögð til breyting til að tryggja að þessar skrár séu notaðar.

Síðan er lögð til breyting sem varðar íhlutun Póst- og fjarskiptastofnunar varðandi afnot, þ.e. kvaðir á póstrekanda eða alþjónustuveitanda til að veita öðrum sem sinna póstþjónustu afnot af tiltekinni aðstöðu. Nefndin leggur til að ekki komi til íhlutunar Póst- og fjarskiptastofnunar nema reynt hafi á það hvort samkomulag næst fyrir aðgang, gjaldtöku og skilyrði milli þeirra sem veita póstþjónustuna.

Síðan er breyting varðandi skyldu alþjónustuveitanda til að gefa út frímerki, í rauninni bara samræming á texta milli greina frumvarpsins, og síðan leggur meiri hlutinn til þá breytingu að Póst- og fjarskiptastofnun verði falið að gefa út póstnúmeraskrá og landfræðilega þekju póstnúmera. Íslandspóstur hefur séð um póstnúmeraskrána. Á sama hátt er kveðið á um að póstnúmeraþekju og staðfangaskrá verði miðlað opið og gjaldfrjálst.

Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á fresti til handa Póst- og fjarskiptastofnun til að bregðast við tilkynningum um breytingar á gjaldskrá. Þessi frestur hefur verið þrír mánuðir en meiri hlutinn telur hæfilegt að miðað sé við 30 virka daga með hliðsjón af hagsmunum póstfyrirtækja og neytenda, auk þess sem gera verður ráð fyrir að Póst- og fjarskiptastofnun forgangsraði verkefnum af þessu tagi.

Auk þess eru gerðar nokkrar lagatæknilegar breytingar.

Að teknu tilliti til framangreindra sjónarmiða leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali, eins og áður er getið. Undir nefndarálitið skrifa sú sem hér stendur, Líneik Anna Sævarsdóttir framsögumaður, Jón Gunnarsson, formaður nefndarinnar, Ari Trausti Guðmundsson, Vilhjálmur Árnason, Karl Gauti Hjaltason og Bergþór Ólason, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar undir álitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda.

Að lokum vil ég þakka gott samstarf í nefndinni í vinnunni við frumvarpið. Umfjöllun um það fór fram í alllangan tíma og var samhliða m.a. vinnu við fjarskiptastefnu og fjarskiptaáætlun og önnur fjarskiptamál sem nefndin vann við á vorþingi.