150. löggjafarþing — 2. fundur,  11. sept. 2019.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:58]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Kæru landsmenn. Við eigum bara eitt líf. Á meðan á því stendur er það okkar að gera sem best úr því, nýta styrkleika okkar en leita aðstoðar vegna veikleika ef einhverjir eru. Þegar á reynir erum við merkilega samstiga. Þessa dagana er hið árlega átak Á allra vörum í gangi og að þessu sinni snýr það að þjóðarátakinu Eitt líf sem er mögnuð barátta fjölskyldu Einars Darra sem lést aðeins 18 ára gamall vegna lyfjaeitrunar. Hann hafði ekki átt sér neina sögu um misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum eða fíkniefnum og því kom andlát hans fjölskyldu og vinum algerlega í opna skjöldu.

En örlög Einars Darra eru ekki einsdæmi. Á síðasta ári létust 39 einstaklingar vegna lyfja- eða fíkniefnanotkunar og í ágúst sl. voru andlátin orðin 23 sem eru til rannsóknar. Það er staðreynd að neysla hérlendis á tauga- og geðlyfjum er töluvert meiri en í nágrannaríkjum okkar og erum við hér að tala um þau lyf sem er ávísað af læknum en ekki þau sem flutt eru inn ólöglega. Sem dæmi nota 10% allra barna og unglinga geðlyf að staðaldri. Í fyrra jókst neysla 10–14 ára barna á ávísuðum svefnlyfjum um rúm 20% og eru nú 670 börn sem nota slík lyf að staðaldri. Tíunda hvert barn á sama aldri fékk ávísað örvandi lyfi og er það fjölgun um 14% og það eru þrefalt fleiri en í Svíþjóð sem næst okkur kemur af Norðurlöndunum. Ef við tökum svo fullorðna með í reikninginn þá notum við Íslendingar 30% meira af þessum lyfjum en Svíar.

Herra forseti. Hvers vegna er þetta svona? Er þetta eitthvert náttúrulögmál á Íslandi? Í skýrslu velferðarráðuneytis frá síðasta ári segir að gera megi ráð fyrir að þróun samfélags og heilbrigðiskerfis á síðastliðnum áratugum eigi þátt í að skapa væntingar og menningu sem lítur á lyf sem lausn margra vandamála og leitt hefur til mikillar aukningar í notkun þeirra. Með öðrum orðum, við bjuggum til þetta ástand. Við bjuggum til það ástand að betra sé að gefa lyf en að eiga samtal við fagaðila í von um betri líðan. Sálfræðitíminn kostar enn 17.000 kr. á meðan örvandi og slævandi lyf ganga kaupum og sölum á skólalóðum og á netinu. Ekki misskilja mig. Lyf eru nauðsynleg en notkun okkar á þeim er að mínu mati óeðlilega mikil. Ný rannsókn meðal grunnskólanema sýnir að þættir eins og góð andleg líðan, að foreldrar viti hvar börn þeirra eru á laugardagskvöldum, samverutími fjölskyldu, tómstundaþátttaka o.fl. fara þverrandi. Það er líka manngert ástand sem hefur bein áhrif á líðan ungmenna og við getum brugðist við, t.d. með því sem við í Samfylkingunni höfum talað fyrir lengi og tekið undir með verkalýðshreyfingunni, sem er stytting vinnuvikunnar. Stjórnvöld hafa svarað þeirri kröfu með því að launþegar afsali sér matar- og kaffitímum í skiptum fyrir styttingu vinnuviku, sem er óásættanlegt á sama tíma og reynslan af styttingu vinnuviku sýnir að framleiðni eykst sem og starfsánægja og almenn vellíðan. Ánægt fullorðið fólk verður svo aftur að betri foreldrum og uppalendum. Foreldrar sem hafa meiri tíma með börnum sínum veita meira aðhald.

Herra forseti. Á vorþingi 2018 ræddum við um vímuefnameðferðir ungmenna sem þá þótti óverjandi að væru inni á Vogi vegna samskipta barna við eldri fíkla. Það kom fram í ræðu og riti hæstv. heilbrigðisráðherra, m.a. í febrúar sl., að Landspítalinn myndi innan sex mánaða taka við vímuefnameðferðum þessa hóps. Í samtali mínu við fulltrúa Landspítala í morgun kom í ljós að það var víst aldrei ætlunin, a.m.k. var Landspítala aldrei tilkynnt um það. Þeirra var að taka á móti einu til þremur börnum af Stuðlum sem ættu við hvað bráðastan heilsufarsvanda að etja vegna fráhvarfa. Fram kom í máli hæstv. ráðherra að það þyrfti bara að breyta húsnæði og ráða mannskap og þá yrði þetta keyrt í gang. Ekkert slíkt hefur hins vegar átt sér stað né virðist í bígerð. Deild var lokað á geðsviði í sumar í sparnaðarskyni og vegna manneklu, en ekkert bólar á boðaðri meðferðardeild fyrir ungmenni, en í fyrra innrituðust 581 einstaklingur undir 30 ára aldri í fyrstu meðferð á Vogi, þar af 70 undir 20 ára aldri.

Hann Einar Darri átti bara eitt líf rétt eins og við hin, en við getum ekki sem samfélag látið þetta ganga svona lengur. Loforð um breytingar verður að efna. Þar skora ég á stjórnvöld að gera miklu betur.