samráð um samgönguáætlun.
Virðulegur forseti. Við erum í þessari vinnu að reyna að útbúa tímamótasamkomulag sem ekki hefur tekist í áratugi. Það hefur ekki tekist að fá sameiginlega sýn ríkisins, Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna á þau áform að leysa þennan hnút. Við höfum unnið þetta í anda samvinnustjórnmála. Við setjum lausnirnar á borðið og reynum að finna þær sameiginlega. Sú vinna er mjög opin og að henni hafa margir aðilar komið. Eins og ég nefndi áðan eru fulltrúar úr öllum flokkum á þingi, í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu og í nær öllum tilfellum eru þeir einhvers staðar í meiri hluta þó að ekki sé það algilt.
Hv. þingmaður er að reyna að búa til áframhaldandi umræðu í þessum þingsal sem er oft ímyndarumræða, ímyndarstjórnmál eða öfgaátakastjórnmál, búa til umræðu um mál sem ekki er komið í sitt endanlega form þannig að hægt sé að svara því hvað stendur í því og hvað ekki. Það er verið að búa til spurningar um eitthvað sem hv. þingmaður sagði að hann hefði gjarnan viljað kynna sér (Forseti hringir.) en gefur sér síðan strax hver niðurstaðan verði og spyr mig spurninga út frá því. (Gripið fram í.) Eigum við ekki að taka umræðuna, hv. þingmaður (Gripið fram í: Já eða nei.) þegar við höfum lokið (Forseti hringir.) þessari vinnu? Hér er kallað: Já eða nei.
(Forseti (SJS): Tíminn er búinn.)
Það er einmitt (Forseti hringir.) í anda ímyndar- og átakastjórnmála. Búum bara til hávaða og stæla, vinnum ekki vinnuna okkar og vöndum ekki til verka. Hvar voru skilaboðin um minna fúsk og meiri ábyrgð?
(Forseti (SJS): Frekari umræður um þetta verða að fara fram á öðrum tíma og annars staðar.)