150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

aðgerðaáætlun í jarðamálum.

20. mál
[17:56]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Þetta var eldræða um ekki neitt, þ.e. að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur væri ekki að gera nokkurn skapaðan hlut í þessum málum. Það er hressandi. Mér þykir hv. þingmaður hafa mikil ítök og vita ýmislegt um hvað er að gerast í ráðuneytum en ég get þó upplýst hann um að bæði sú tillaga sem ég var 1. flutningsmaður að í fyrra og hv. þingmaður vísaði í og svo þessi hér eru til áminningar svo ákveðnir þættir gleymist ekki þegar verið er að vinna málin. Það er búið að skila skýrslum sem verið er að vinna úr og ég get upplýst hv. þingmann um að við eigum von á frumvarpi um þessi mál. Allt tekur þetta tíma og það er mikilvægt í svona stóru máli að vanda vel til verka. Við vöknuðum upp við vondan draum þegar hinir ýmsu aðilar gerðust stórtækir í uppkaupum á jörðum. Þá þegar var hafist handa við að kortleggja ýmsa þætti og m.a. komumst við að því að eignaskrá er því miður ekki í lagi, hvorki eignaskrá ríkisins né almenn skráning á hinum ýmsu landspildum úti um allar koppagrundir. Unnið er að því að laga það. Þetta minnir m.a. á að það þarf að gera.

Hér er bent á að þjóðskrá telji sig þurfa aðstoð við framkvæmdina því að þetta er risastórt verkefni sem er mikilvægt að huga að því að veita fjármagn til. Það er í vinnslu í forsætisráðuneytinu undir þeim formerkjum sem ég var að segja frá, þ.e. verið er að útbúa lagafrumvarp um jarðeignir á Íslandi, uppkaup og annað slíkt.

Ég fagna þessu máli um aðgerðaáætlun í jarðamálum. Ég er sjálf búin að tala töluvert mikið um þetta og spyrjast fyrir um ýmislegt sem lýtur að þessum málum. Í svörum eða svaraleysinu á sínum tíma kom í ljós að það vantaði skráningu á eignum, bæði eignum ríkisins, því miður, og öðrum landspildum. Nú er verið að bregðast við því þegar Vinstri græn eru í ríkisstjórn. Ég bendi hv. þingmanni á það af því að hann talaði mjög mikið um það.

Það ætti ekki að koma á óvart að flest ríki setja sér lög og reglur sem takmarka á ýmsan hátt aðilaskipti að fasteignum, ekki síst landbúnaðarlandi. Reglurnar miða m.a. að því að tryggja að ríkisvaldið hafi með einhverju móti stjórn á viðskiptum með land og yfirsýn yfir eignarhald á því. Mjög víða er lögð áhersla á að halda eignarhaldi á landi og auðlindum í almannaeign og fyrir því höfum við Vinstri græn talað, en stjórnvöld ríkja þar sem einkaeignarréttur á landi er í hávegum hafður eru mörg hver meðvituð um mikilvægi þess að halda eignarhaldi á landi í höndum eigin þegna. Aukin meðvitund um samspil eignarhalds á landi og réttar til ráðstöfunar á auðlindum hefur m.a. orðið til þess að ríki sem hafa í umtalsverðum mæli misst eignarhald á landi út fyrir landsteinana leggja nú sum hver bann við landsölu til erlendra aðila. Ég legg áherslu á að þau leggja bann við því en við höfum ekki beinlínis farið fram á það. Önnur ríki leggja áherslu á skýrar skorður og takmarkanir í þessum efnum og í sumum tilvikum er reynt að vinda ofan af landsölu sem þegar hefur átt sér stað.

Auðvitað blandast inn í svona umræður vangaveltur stjórnmálanna sem tengjast áhrifum auðmanna, hvort sem þeir eru erlendir eða íslenskir. Inn í þetta blandast alþjóðlegir auðhringir og erlend ríki, m.a. í gegnum eignarhald á landi og auðlindum. Í sjálfu sér má segja að maður horfi beinlínis upp á ákveðið skattaskjól í því sem hefur átt sér stað á Íslandi, þ.e. uppkaupum aðila eins og Ratcliffes fyrir austan. Þetta er ekkert annað.

Á alþjóðavísu sjáum við verðmætin sem felast í eignarhaldi á jarðnæði og landi. Burt séð frá öðrum auðlindum sem fylgja getum við horft til þess að gott ræktar- og landbúnaðarland er víða orðið af skornum skammti í heiminum. Þar með eykst verðgildið og það verður miklu verðmætara. Við getum líka horft til þess að regluverkið hér á landi þegar kemur að vatnsauðlindinni sérstaklega er ekki alveg nógu sterkt. Regluverk okkar skilgreinir grunnvatnið og drykkjarvatnið er þá hluti af landareign en það er skammsýni að halda að það sé eitthvert minni háttar mál eða spurning um viljayfirlýsingu sem eigendur lands geti boðið. Það er ekki nóg. Því miður höfum við ekki sett heildstæða löggjöf sem tekur til alls vatns, yfirborðsvatns jafnt sem grunnvatns, sem breytir stefnunni í þessum efnum en við vitum það öll og ég held að við getum fullyrt að vatn er eitt mesta hagsmunamál komandi kynslóða bæði hérlendis og erlendis. Það má alveg draga ályktanir af því þegar menn koma utan úr heimi og vilja safna saman jörðum þar sem hlunnindi eru undir. Þar ásælast menn ekki bara laxveiðiár, þeir ásælast líka vatnið. Það er a.m.k. mín skoðun og ég tel það varhugavert.

Það kemur fram í frumvarpinu, og mér finnst það mikilvægt í ljósi þess sem kom fram í andsvari hjá hv. flutningsmanni málsins, að talið er rétt að skoða hvort setja eigi lagaskyldu um að þegar jarðeigendur eru fleiri en þrír þurfi að setja félag með forsvarsmanni. Ég held að það sé mjög mikilvægt sem og að einhverjir hafi raunverulegar heimildir til að gera eitthvað. Við sáum verða mikið vesen á eignarhaldi í kringum náttúruperluna Jökulsárlón og uppbyggingu ferðaþjónustu. Þegar eigendur eru margir og sumir finnast ekki og það eru jafnvel deilur innan fjölskyldu þarf að vera eitthvað sem nær utan um það. Við getum ekki látið innviði, fjallskil og hvaðeina bíða þegar menn leggja ekkert til þegar um stórar jarðir er að ræða, hvort sem þær eru í rekstri eða nýtingu eða ekki.

Mér dettur mjög margt í hug í umfjöllun um mál af þessum toga og mér verður heitt í hamsi vegna þeirra atburða sem hafa gerst. Eignarrétturinn er mjög sterkur hérna og það er alltaf mikilvægt að gæta þess að skerða ekki rétt bænda til að geta hætt búskap eða hafið búskap ef því er að skipta. Ég tel að við eigum að geta komið í veg fyrir að eitthvað slíkt hendi ef við höldum vel á þessu máli.

Annað sem varðar almannaréttinn og þetta með að tryggja aðgengi fólks að eignarlandi að einhverju leyti, þ.e. um náttúruperlurnar, víðernin og annað slíkt, er að við horfum ekki upp á að þessi uppkaup verði svo stórtæk og nái yfir svo víðáttumikið land að fólki verði bara hreinlega óheimil för eða gert það svo erfitt fyrir að það geti illa farið um landið án þess að eitthvert vesen fylgi því.

Eins og oft áður ætlaði ég að tala mjög stutt en svo er ræðutíminn að verða uppurinn. Mér finnst málið gott og það er gott innlegg í þá umræðu og vinnu sem ráðuneytin eru að vinna, samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytið, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og svo forsætisráðuneytið sem heldur utan um málið. Eignarrétturinn á ríkisjörðum heyrir undir fjármálaráðuneytið og (Forseti hringir.) ég veit að við fáum von bráðar mál inn í þessum efnum.