ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.
Herra forseti. Mig langaði bara að koma örstutt upp til að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ræðuna. Það eru tveir punktar sem mér fannst sérstaklega athyglisverðir. Annar er að við séum að nota pálmaolíuna í lífdísilinn. Það er svo sorglegt af því að auðvitað er mjög mikilvægt að við notum lífdísil til að minnka notkun jarðefnaeldsneytis en, eins og við komum líka inn á í andsvörum við hv. þm. Harald Benediktsson, það þarf líka að líta á stóru myndina. Það er svo margt annað sem við getum valið frekar en pálmaolíu sem við vitum svo skýrt að hefur slæm áhrif á umhverfið, eitthvað sem hefði jákvæð áhrif að rækta. Mér fannst það mikilvægur og góður punktur hjá hv. þingmanni.
Mig langaði einnig að taka undir með hv. þingmanni varðandi bættar merkingar. Það er ekki bara að það sé ofboðslega flókið að sjá í hverju pálmaolían er, hún virðist vera í nánast öllu sem er mjög leiðinlegt. Svo er mál sem ég hef verið að skoða, og hefði gaman af að heyra skoðun hv. þingmanns á, og varðar það að merkja á einhvern hátt eða vera með einhvers konar upplýsingasíðu fyrir neytendur þar sem þeir geta séð kolefnisfótspor vörunnar sem þeir eru að kaupa. Ég veit að þetta er kannski stórt verkefni og óyfirstíganlegt og þess vegna datt mér í hug þessi leið að nýta frekar heimasíðu þar sem fólk getur sótt upplýsingarnar.
Það væri áhugavert að heyra álit hv. þingmanns á þeirri hugmynd.