150. löggjafarþing — 10. fundur, 25. sept. 2019.
svör við fyrirspurnum.
Hæstv. forseti. Ég er á svipuðum stað. Ég sendi fyrirspurn til skriflegs svars til efnahags- og viðskiptaráðherra á síðasta þingi sem fjallaði um sölu á ríkisjörðum. Ég sendi hana frá mér 6. maí og fékk aldrei svar svo að ég hef á ný sent sömu spurningu og vonast til þess að fá svar innan þess frests sem gefinn er og að svarið verði nokkurn veginn fullnægjandi.