jarðamál og eignarhald þeirra.
Herra forseti. Ég þakka fyrir mjög góðar umræður. Hv. þingmenn ræddu aðeins um markmið lagabreytinga og því vil ég í fyrsta lagi segja að ég lít svo á að markmið lagabreytinga hljóti að vera að styrkja lagaumhverfi um eignarhald og nýtingu fasteigna, m.a. þau stjórntæki sem stjórnvöld hafa til að ýta undir þjóðhagslega hagkvæma nýtingu á fasteignum landsins og landgæðum í samræmi við almannahagsmuni. Þegar ég tala um fullveldishagsmuni eiga þeir ekki eingöngu við um erlenda fjárfesta, bara svo það sé algjörlega skýrt, heldur snúast þeir almennt um samþjöppun lands undir tilteknum einstaklingum eða félögum í eigu einstaklinga alveg óháð þjóðerni. Of mikil samþjöppun lands algjörlega óháð þjóðerni varðar líka fullveldishagsmuni.
Hins vegar er markmiðið með endurskoðuninni líka að bæta gagnsæi eignarhalds fasteigna og yfirsýn stjórnvalda í þeim efnum. Það er eðlileg og nauðsynleg krafa að það liggi ljóst fyrir hverjir eiga íslenskt land og landgæði, m.a. í gegnum fyrirtæki.
Árið 2019 voru 1.335 jarðir af 7.703 jörðum, þ.e. 17%, í eigu lögaðila. Þá eru aðrar fasteignir, t.d. íbúðarhúsnæði, ekki meðtaldar. Árið 2009, fyrir tíu árum, var fjöldinn 908 sem gerir 47% fjölgun á einum áratug þar sem við sjáum fjölgun á eignarhaldi í höndum lögaðila.
Ég verð að segja að mér fannst merkilegt að heyra hv. þingmenn Miðflokksins vera mjög hissa á því hve langan tíma þetta hefur tekið og vísa í skýrslu frá 2014 sem ekkert hefur verið gert með þegar formaður þeirra, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, var einmitt forsætisráðherra. Ég sé að þeir hv. þingmenn eru ekki í salnum en væru þeir í salnum myndi ég vísa þeirri gagnrýni til föðurhúsanna og biðja þá að ræða þetta á þingflokksfundi Miðflokksins fremur en að kvarta yfir því sem aðrir eru þó að gera.
Hér töluðu hv. þingmenn um laxveiðiréttindi og ég vil nefna að það er sömuleiðis til skoðunar hjá þeim sérfræðingum sem eru að fara yfir þessi mál. Ég náði ekki að fara yfir öll þau mál sem þar eru til skoðunar. Ég (Forseti hringir.) er með þau til skoðunar núna í mínu ráðuneyti í ljósi þess að málin heyra undir marga ólíka ráðherra eins og kom fram í máli mínu. Ég sé hins vegar fyrir mér að hv. þingmenn muni kvarta undan því að fá ekki að sjá heildarmyndina og þess vegna nefndi ég þann möguleika að hugsanlega verði lagður fram bandormur. (Forseti hringir.) Hann mun ekki koma fram fyrr en seint á þessu haustþingi en þá munu þingmenn líka hafa alla myndina undir sem gerir þeim hugsanlega auðveldara fyrir að taka afstöðu til mála.