150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

útgáfa á dómum og skjölum Yfirréttarins á Íslandi í tilefni af aldarafmæli Hæstaréttar.

232. mál
[15:57]
Horfa

Frsm. forsætisn. (Þorsteinn Sæmundsson) (M):

Herra forseti. Ég geri hér grein fyrir nefndaráliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um tillögu til þingsályktunar um útgáfu á dómum og skjölum Yfirréttarins á Íslandi í tilefni af aldarafmæli Hæstaréttar. Eins og kunnugt er kom fram þingsályktunartillaga um að Alþingi ályktaði í tilefni aldarafmælis Hæstaréttar á næsta ári, 2020, að fela forseta þingsins að ganga til samstarfs við Þjóðskjalasafn Íslands og Sögufélag um útgáfu á dómum og skjölum Yfirréttarins á Íslandi og að Alþingi myndi styrkja þessa útgáfu fjárhagslega um 10 millj. kr. á ári næstu tíu árin.

Málið fékk góða umfjöllun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þar sköpuðust nokkrar umræður um málið sem slíkt en niðurstaða nefndarinnar, að loknum heimsóknum og umræðum í nefndinni, er að tillagan verði samþykkt. Nefndarálitið frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hljóðar að öðru leyti þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórhall Vilhjálmsson og Laufeyju Helgu Guðmundsdóttur frá skrifstofu Alþingis.

Nefndinni bárust umsagnir frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og Þjóðskjalasafni Íslands.

Í umsögn Þjóðskjalasafns Íslands segir að útgáfa á dómum og skjölum Yfirréttarins sé mikilvægt skref í að gera heimildir þess dómstóls aðgengilegri en nú er. Skjöl Yfirréttarins geyma ekki eingöngu heimildir um réttarsögu landsins heldur einnig um sögu lands og þjóðar þar sem dómar Yfirréttarins endurspegla viðhorf og ástand landsmála um langt árabil. Nefndin tekur undir þetta sjónarmið og telur við hæfi að Alþingi minnist aldarafmælis Hæstaréttar Íslands í ljósi þess hlutverks sem Alþingi hefur gegnt í dómstólasögu landsins. Útgáfa á dómum og skjölum Yfirréttarins á Íslandi mun auðvelda rannsóknir á sögu landsins og heimildagildi slíks efnis er ótvírætt.

Í umsögn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er lagt til að í stað þess að gefa út dóma og skjöl Yfirréttarins á Íslandi á prenti, sé lagt til að gerður verði gagnagrunnur og vefsíða sem skuli vera opin öllum. Með því geti almenningur og rannsakendur auðveldlega nálgast efnið, leitað í því, lesið og prentað út ef þörf krefur. Nefndin tekur undir það sjónarmið að dómar og skjöl Yfirréttarins skuli einnig geymd í rafrænum tölvulæsilegum gagnagrunni sem verði handhægur og aðgengilegur öllum. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.“

Þeir sem standa að þessari tillögu, ásamt þeim sem hér stendur, eru hv. þingmenn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Guðmundur Andri Thorsson, Brynjar Níelsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Steindór Valdimarsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Óli Björn Kárason og Þórarinn Ingi Pétursson.