150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[16:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef engar forsendur til að svara afdráttarlaust þessari spurningu hv. þingmanns. Aftur á móti fórum við í vinnu fjárlaganefndar yfir þær greinargerðir er lágu á bak við þær fjárhæðir sem birtar eru í frumvarpinu. Ég ætla ekki í þessum stól í stuttu andsvari að segja hvort þetta sé rétt upp á krónu. Það má örugglega hafa uppi einhver sjónarmið í þeim efnum. Ég er ekki þess umbúinn á þessari stundu að gera annað en að standa við þá tölu sem birtist í þessu frumvarpi og þeirri greinargerð sem liggur að baki henni.