150. löggjafarþing — 68. fundur,  3. mars 2020.

breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.

332. mál
[17:16]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum varðandi leyfisveitinga, á þskj. 1025.

Meginefni frumvarpsins lýtur að því að felldar verði niður kvaðir um leyfis- eða skráningarskyldu vegna nánar tilgreindrar starfsemi sem ekki er talið nauðsynlegt að séu í lögum. Jafnframt er með frumvarpinu lagt til að felld verði úr gildi lög sem talin eru úrelt og hafa ekki sjálfstætt gildi lengur. Um efni frumvarpsins vísast að öðru leyti til greinargerðar með því.

Í 12. og 13. gr. laga um verslunaratvinnu, nr. 28/1998, er kveðið á um leyfisskyldu til að reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki auk þess sem skilyrði slíks leyfis eru skilgreind. Með 5. gr. frumvarpsins er lagt til að þessi ákvæði falli brott og að starfsemin verði þar með ekki lengur háð starfsleyfi. Við meðferð málsins hjá nefndinni sætti þessi breyting gagnrýni og var m.a. bent á að leyfisveitingin skapaði aðhald fyrir sölufyrirtæki og stuðlaði að auknu trausti og fagþekkingu í viðskiptum með notuð ökutæki.

Bent hefur verið á að réttindi neytenda séu mun betur tryggð nú á dögum en þegar leyfisskylda til sölu notaðra ökutækja var sett á árið 1994, ekki síst með tilkomu laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005, og samkeppnislaga, nr. 44/2005. Þau lög gildi um alla atvinnustarfsemi og sérstök rök þurfi að koma til svo að rétt sé að auka opinbert eftirlit með tiltekinni starfsemi umfram aðra. Að öðru leyti vísa ég hvað þetta varðar til nefndarálitsins.

Samkvæmt iðnaðarlögum er lögreglu falið eftirlit með löggjöfinni. Við meðferð málsins var nefndinni bent á að eftirlitið væri ómarkvisst og að því væri áfátt og ábótavant. Tilefni væri til að endurskoða eftirlit með iðnaðarlögum með heildrænum hætti. Þá var bent á að þörf væri á að halda og birta skrá yfir þá einstaklinga sem hlotið hafa réttindi samkvæmt lögunum.

Nefndinni er kunnugt um að ráðherra hafi þegar skipað starfshóp sem ætlað er að skila skýrslu með tillögum til úrbóta að þessu leyti. Í skipunarbréfi ráðherra kemur fram að eftirlit með iðnaðarlögum hafi í einhverjum mæli færst yfir á markaðinn og að skortur sé á úrræðum til að stöðva ólögmæta starfsemi ófaglærðra í löggiltum iðngreinum. Flestar kærur séu látnar niður falla og þá sjaldan sem mál rati fyrir dóm séu sektarfjárhæðir ólíklegar til að hafa varnaðaráhrif.

Starfshóp ráðherra er ætlað að taka eftirlit með iðnaðarlögum til endurskoðunar með það að markmiði að bæta framkvæmd þess þannig að allir sem starfa á sviði lögverndaðra iðngreina starfi eftir sömu leikreglum. Vinnan á einnig að taka til styttingar málsmeðferðartíma hjá stjórnvöldum og aukinnar skilvirkni eftirlits, t.d. þannig að viðurlög við brotum hafi raunveruleg varnaðaráhrif.

Nefndin hvetur til að við vinnu starfshópsins verði m.a. tekið til skoðunar hvort og með hvaða hætti skynsamlegt sé að halda og birta lista yfir útgefin sveins- og meistarabréf samkvæmt iðnaðarlögum.

Þá er rétt að geta þess að við gildistöku frumvarpsins falla brott ákveðnar leyfisveitingar og þar af leiðandi verður ekki lengur grundvöllur fyrir gjaldtöku þeirra leyfa. Nefndin leggur til að felldir verði brott viðeigandi gjaldtökuliðir í lögum um aukatekjur ríkissjóðs til samræmis. Nefndin leggur jafnframt til að bráðabirgðaákvæði laga um verslunaratvinnu falli brott þar sem það þjónar ekki lengur tilgangi.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með breytingartillögum sem fylgja nefndarálitinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Smári McCarthy og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar undir álitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, sem er framsögumaður, en ég hleyp í hennar skarð í fjarveru hennar, Þorsteinn Víglundsson, Brynjar Níelsson, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir auk þess sem hér stendur, Óli Björn Kárason.