150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

um fundarstjórn.

[14:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Formaður Sjálfstæðisflokksins, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, kom í veg fyrir að Þorvaldur Gylfason, sem hefur getið sér gott orð sem hagfræðingur á alþjóðavísu, fengi starf sem honum hafði boðist. Formaður Sjálfstæðisflokksins, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, beitti sér og nýtti sér stöðu sína til að refsa Þorvaldi Gylfasyni fyrir að tjá sig um þjóðmál í ræðu og riti. Hæstv. ráðherra starfar í umboði Alþingis. Alþingi getur aldrei samþykkt og á aldrei (Forseti hringir.) að samþykkja að ráðherra beiti sér með þessum hætti. Ég vænti þess að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sinni skyldum sínum og taki (Forseti hringir.) þetta mál fyrir á fundi. (Gripið fram í: Heyr heyr.)